Grundarfjarðarhöfn hefur hafið framkvæmdir við gerð nýrrar stálþilsbryggju sem mun leysa litlu bryggjuna af hólmi. Nýja bryggjan verður mun stærri en sú eldri, um 65 löng annars vegar og 85 m löng hins vegar og 20 m breið. Tæplega 50 metra löng jarðvegsfylling er út að nýju bryggjunni. Verktakafyrirtækið Berglín, sem var lægst í útboði verksins fyrr í vor með tilboð uppá tæpar 84 milljónir kr., sér um framkvæmdina.
Til að minnka ónæði bæjarbúa vegna var lagður vegur í fjörunni milli hafnargarðs og Nesvegar og nota verktakar þá leið til að flytja efni til bryggjugerðarinnar úr námunni við iðnaðarsvæðið. Þessum hluta verksins verður lokið 1. des. nk, þekja á nýju bryggjuna verður steypt á árinu 2007.