- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Miðvikudagskvöldið 18. janúar 2006 tóku vinnuhópar til starfa við mótun fjölskyldustefnu. Rétt tæplega 50 manns voru mættir á vinnufundi í húsnæði Fjölbrautaskóla Snæfellinga, en fimm hópar fjalla um þarfir einstaklinganna í samfélaginu á mismunandi aldursskeiðum; 0-14, 14-20, 20-40, 40-60 ára og 60+. Ætlunin er að hóparnir eigi nokkra fundi og skili svo niðurstöðum á sameiginlegum fundi í lok febrúar. Þá taka stýrihópur og bæjarstjórn við og ljúka gerð fjölskyldustefnu.
Enn er tækifæri að taka þátt í starfi hópanna eða koma skilaboðum á framfæri inn í hópastarfið, með því að mæta á næsta fund eða hafa samband við hópstjóra. Næstu fundir þeirra eru sem hér segir:
0-14 ára: Mánudaginn 23. janúar kl. 20 í safnaðarheimili Grundarfjarðarkirkju (kirkjukjallara).
Hópstjórar eru Elínborg Sturludóttir og Fríða Matthíasdóttir.
14-20 ára: Mánudaginn 23. janúar kl. 15.30 í Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Hópstjórar eru Hildur Sæmundsdóttir og Pétur Georgsson.
20-40 ára: Miðvikudaginn 25. janúar kl. 20.15 í Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Hópstjórar eru Jón Ásgeir Sigurvinsson og Una Ýr Jörundsdóttir.
40-60 ára: þriðjudaginn 31. janúar kl. 20.30 í Sögumiðstöðinni.
Hópstjórar eru Ingi Hans Jónsson og Shelagh Smith.
60 + : þriðjudaginn 24. janúar kl. 20.30 í fjarnámsverinu/efri hæð Smiðjunnar, Borgarbraut 16 (sama stað og bókasafnið)
Hópstjórar eru Kristín Árnadóttir og Tryggvi Gunnarsson.
Þátttakendur í hópastarfinu voru á öllu aldri. |