- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Danska 50% staða
Félagsgreinar 50% staða
Laun greiðast samkvæmt stofnanasamningi skólans.
Skólinn er framhaldsskóli með áfangasniði þar sem í boði eru stúdentsbrautir, almenn námsbraut og starfsbraut. Skólinn er með framhaldsskóladeild á Patreksfirði. Helstu áherslupunktar í kennsluháttum skólans eru nýting upplýsingatækni í skólastarfi, fjölbreyttar verkefnamiðaðar kennsluaðferðir og námsmat með sérstakri áherslu á leiðsagnarmat.
Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í fagi og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Leitað er að kennurum sem hafa frumkvæði, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og hafa áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi og uppbyggingu náms í samræmi við ný lög um framhaldsskóla (nr. 92/2008).
Ráðið verður í stöðurnar frá 1. janúar 2013.
Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist Jóni Eggerti Bragasyni skólameistara á netfangið joneggert@fsn.is.Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði.
Umsóknarfrestur er til 8. desember 2012.
Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir skólameistari á netfanginu joneggert@fsn.is eða í síma 8917384. Á vef skólans www.fsn.is má einnig finna ýmsar upplýsingar um skólann.
Skólameistari