Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Fjárhagsáætlun 2025 - umsóknir um styrki

 

Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Grundarfjarðarbæjar fyrir árið 2025. Auglýst er eftir styrkumsóknum frá einstaklingum og/eða félagasamtökum. Hefur þú eða félagasamtök á þínum vegum hug á að senda inn styrkumsókn fyrir árið 2025?

 Sendu þá umsókn á netfangið:

grundarfjordur@grundarfjordur.is

 

Taktu fram fjárhæð þess styrks sem óskað er eftir og láttu fylgja stutta greinargerð.

Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2024.