Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Föstudaginn 23. ágúst sl. voru lögð á fjallskil í Eyrarsveit. 

Fyrri leitir munu fara fram laugardaginn 21. september nk. og verður réttað samdægurs á Mýrum og í Hrafnkelsstaðarétt.

Seinni leitir munu svo fara fram laugardaginn 5. október.

Vinsamlega athugið, ef veður leikur illa við okkur, þá gæti leitum verið frestað en það yrði þá auglýst nánar hér á vef Grundarfjarðarbæjar.

Fjallskil fela í sér skyldu fjáreigenda til að skila ákveðnum fjölda dagsverka við fjárleitir. Öllum þeim sem hafa búfé undir höndum sem fjallskilaskylt er, ber að taka þátt í göngum og hreinsun heimalanda, samkvæmt lögum um afréttarmálefni, fjallskil o.fl. nr. 6/1986, og eftir því sem sveitarstjórn á hverjum stað ákveður.

Fjallskilaseðill hefur verið sendur á alla þá sem fjallskilaskyldir eru. 

Skipulags- og umhverfisnefnd fer, skv. erindisbréfi, með málefni fjallskila í Grundarfjarðarbæ og nýtur við það trausts liðsinnis bænda í sveitinni.

Fjallskilakveðjur