Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga óskar eftir að ráða félagsráðgjafa. Um er að ræða 80 -100% stöðugildi, æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Umsjón með málaflokki fatlaðs fólks
Þverfagleg teymisvinna
Barnavernd
Almenn félagsráðgjöf
Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
Leyfi frá landlækni til að starfa sem félagsráðgjafi
Frumkvæði, vandvirkni og sjálfstæði í starfi
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Laun skv. kjarasamningum félagsráðgjafa
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingveldur Eyþórsdóttir forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga í síma 430-7800 eða ingveldur@fssf.is
Skriflegar umsóknir þar sem fram kemur menntun og fyrri störf ásamt sakavottorði og nöfnum umsagnaraðila berist skrifstofu FSS, Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ eða á netfangið ingveldur@fssf.is