- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Margir eru eflaust farnir að velta fyrir sér hvers vegna fasteignagjaldaseðlarnir eru ekki komnir. Ástæðan fyrir því er að ennþá er verið að vinna í álagningarforsendum og stilla álagningarkerfið af. Vegna þess að þessi vinna hefur sóst heldur seinna en venjulega, verður 1. gjalddagi í ár ekki fyrr en 1. mars n.k. Á sama hátt færist síðasti gjalddagi aftur um einn mánuð og verður 1. október í haust. Vonast er til þess að enginn verði fyrir óþægindum af þessum sökum. Skrifstofa Grundarfjarðarbæjar er ævinlega reiðubúin til þess að veita gjaldendum þær upplýsingar sem tiltækar eru hverju sinni.