- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Fimm flottir og efnilegir grundfirðingar urðu íslandsmeistarar í knattspyrnu í sumar. Þeir Reynir Már Jónsson, Haukur Smári Ragnarsson, Páll Hilmar Guðmundsson, Guðjón Sigurðsson og Ívar Orri Sigurðsson urðu íslandsmeistarar í 3.fl.kk í knattspyrnu með sameiginlegu liði Ungmennafélags Víkings/Reynir og ÍA. Frábærir ungir knattspyrnumenn hér á ferð með bjarta framtíð fyrir sér.
Þessir ungu Grundfirðingar eru svo sannarlega góðar fyrirmyndir fyrir komandi knattspyrnukynslóð hér í Grundarfirði.
Óskum við þeim innilega til hamingju með þennan frábæran árangur.