Hagstofa Íslands hefur birt nýjar tölur um búferlaflutninga fyrir annan ársfjórðung. Fyrstu sex mánuði ársins urðu breytingar á íbúafjölda á Vesturlandi eftirfarandi: Brottfluttir umfram aðflutta á Vesturlandi voru 72.

Á Akranesi fækkaði um 11, í Borgarbyggð fækkaði um 24, í Stykkishólmi fækkaði um 21, í Snæfellsbæ fækkaði um 12 og í Grundarfirði voru brottfluttir umfram aðflutta 2, 34 voru aðfluttir og 36 burtfluttir.

Vakin er athygli á því að fæðingar og andlát eru ekki inní þessum tölum.