Að leik á skólalóð grunnskóla. Mynd Tómas Freyr Kristjánsson.
Í dag hefur starfsfólk skóla og félagsmiðstöðvar unnið að því að skipuleggja skóla- og æskulýðsstarf í samræmi við reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar, sem sett var í morgun. Reglugerðin tekur gildi frá og með þriðjudeginum 3. nóvember 2020 og gildir til og með 17. nóvember nk., með fyrirvara um breytingar eftir því hvernig framvinda smita verður á landinu. Markmiðið með reglugerðinni er að tryggja að sem minnst röskun verði á skólastarfi vegna COVID-19 sjúkdómsins með ýtrustu sóttvarnarsjónarmið að leiðarljósi.
Foreldrar og forráðamenn fengu í dag tölvupósta frá skólunum, auk þess sem leiðbeiningar voru birtar á Facebook-síðu grunnskóla.
Hér er samantekt um helstu ráðstafanir í skóla- og æskulýðsstarfi hjá Grundarfjarðarbæ:
Leikskólinn
Samkvæmt nýju reglugerðinni þarf ekki að hólfa starfsemina niður eins og sl. vor, áherslan er á grímunotkun og 2ja metra persónubil starfsfólks og sótthreinsun viðkvæmra snertiflata.
- Foreldrar koma ekki lengur inn í anddyri leikskólans á morgnana og seinni partinn. Starfsfólk tekur á móti börnum í anddyri.
- Börn á músadeild koma inn frá pallinum, hlið sem snýr út að Sólvöllum verður opnað. Tekið á móti börnunum í svaladyrum.
- Börn á drekadeild koma inn í gegnum garðinn. Fötin þeirra verða á snögunum sem eru frammi í nýja rýminu. Hlið út að Sólvöllum verður opnað.
- Börn á ugludeild koma inn um aðalinngang.
- Þegar foreldrar/forráðamenn sækja börnin, hringja þeir á undan sér í gsm-síma deilda og þá eru börnin klædd og þeim fylgt út. Þetta á sérstaklega við nemendur á músadeild, þar sem þau eru ekki alltaf úti á þessum tíma. Einnig ef foreldrar koma fyrr að sækja.
- Enn meiri áhersla á sótthreinsun á viðkvæmum snertiflötum.
- Hressing og hádegismatur í boði, eins og verið hefur.
Leikskóladeildin Eldhamrar
Óbreytt starfsemi að mestu.
- Foreldrar/forráðamenn koma ekki inní skólann - starfsfólk Eldhamra tekur á móti þeim í anddyri, eins og verið hefur.
- Hressing og hádegismatur í boði, eins og verið hefur.
- Sami inngangur og áður - aðalinngangur skólans.
Grunnskólinn
- Búið er að koma upp sóttvarnarhólfum og skipta nemendum upp.
- 1. – 4. bekkur mæta á sínum stað kl. 8:10
- 5. – 7. bekkur mæta kl. 8:20 við sinn inngang.
- 8. – 10. bekkur mæta á sínum stað, skv. stundaskrá. Starfið með óbreyttu sniði nema á mánudag 9. nóv. mæta nemendur kl. 8:50
- Nemendur í 5. – 10. bekk:
- þurfa að halda 2ja metra fjarlægð við aðra nemendur og við starfsfólk.
- Þar sem ekki er hægt að halda 2ja metra fjarlægð, notast nemendur við andlitsgrímur.
- Grímur eru einnig notaðar þegar farið er á milli hólfa og verið í sameiginlegum rýmum, s.s. í anddyri, á göngum og á salernum.
- Þetta verður útskýrt betur fyrir nemendum. Allt kapp er lagt á það að hafa skólastarf með sem eðlilegustum hætti.
- Nemendur í 1. - 4. bekk:
- Fjarlægðarmörk og grímuskylda gildir ekki um þau, en gildir fyrir kennara þeirra og annað starfsfólk.
- Öll íþróttakennsla fellur niður. Í staðinn kemur útivist þegar hægt er að koma því við. Því er mikilvægt að nemendur komi klæddir eftir veðri.
- List- og verkgreinar falla ekki niður, en nýta þarf andlitsgrímur í þeim kennslustofum.
- Áfram verður hafragrautur í boði á morgnana og hádegismatur í skólanum. Breytt fyrirkomulag á því að skammta hádegismat.
Lengd viðvera/heilsdagsskólinn
- Heilsdagsskólinn verður opinn fyrir 1. – 2. bekk
- Starfsemin verður að öðru leyti með óbreyttum hætti og óbreytt fyrirkomulag á hressingu og mat
Tónlistarskólinn
-
Einkatímar:
- Allir tímar haldast og er nemendum leyfilegt að sækja tíma á grunnskólatíma.
- Vegna 10 manna fjöldatakmörkunar í húsinu (eitt rými) verða allir tímar örlítið styttri, til að rýma til áður en nemendur í næstu tímum koma í hús.
- Alexandra mun halda 2 m fjarlægð en í einhverjum tilfellum er það erfiðara og þá er að sjálfsögðu grímuskylda.
- Í söngtímum hjá Lindu Maríu verður búið að setja upp svokallað "frusstjald" sem skilur að nemendur og kennara og þá þarf ekki að vera með grímu þar.
-
Hóptímar:
- Hljómsveitaræfingar falla niður.
- Flestir hóptímar í söng verða óbreyttir, en Linda verður í sambandi við þá sem þarf að breyta v/blöndunar á milli bekkja.
- Allir tímar hjá Baldri og Bent fara áfram fram í gegnum fjarkennslubúnað og er nemendum áfram velkomið að sækja sína tíma í tónlistarskólann. Ef einhverjir kjósa að vera heima setja foreldrar sig í samband við kennarann.
- Ekki er í boði að bíða í lengri tíma í anddyri tónlistarskólans. Við biðjum alla sem eru að koma í tíma að mæta rétt áður en tími byrjar og yfirgefa skólann um leið og tíma lýkur. Sófinn góði verður ekki í notkun heldur setjast nemendur á stól fyrir framan stofuna sína (allir stólar eru merktir).
- Nemendur þurfa að koma með hljóðfæri með sér (þar sem við á) og einnig möppur/nótur.
Félagsmiðstöðin Eden
- Ekki er heimilt að halda úti skipulögðu íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfi barna og unglinga á grunnskólaaldri, þannig að Eden verður lokað.
- Umsjónarmenn munu skoða aðra möguleika á að eiga uppbyggileg samskipti/félagsstarf, án "hittings".
Hjá öllu starfsfólki gilda 2ja metra fjarlægðarmörk og grímuskylda þegar ekki er hægt að koma fjarlægð.
Ef eitthvað er óljóst er velkomið að senda tölvupóst;
Anna leikskólastjóri - solvellir@gfb.is
Sigurður Gísli grunnskólastjóri - sigurdur@gfb.is
Linda María v. tónlistarskóla - lindam@gfb.is
Ragnheiður Dröfn v. Eden - ragnheidurd@gfb.is