- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Skessuhorn 5. febrúar 2010:
Slökkviliðsmönnum í Grundarfirði hefur lengi fundist skorta á búnað sinn, að því leyti að engar hafa þeir haft björgunarklippurnar, og því staðið verr að vígi við að losa fólk út úr bílum en slökkviliðin í nágrannabæjunum Snæfellsbæ og Stykkishólmi, sem bæði hafa yfir klippum að ráða. Slökkviliðið í Grundarfirði er nú líka búið að fá klippur. Valgeir Magnússon slökkviliðstjóri sótti þær suður til Reykjavíkur í byrjun síðustu viku og ekki var beðið boðanna að kalla saman fyrstu æfinguna þar sem klippunum var beitt, hún var haldin strax tveim dögum seinna.
Valgeir segir að slökkviliðsmenn séu mjög ánægðir, enda klippurnar algjörlega nauðsynlegt tæki og illa hægt að vera án þeirra, enda oft kapphlaup við tímann þegar slys verða. Það voru slökkviliðsmennirnir sjálfir sem höfðu frumkvæði að söfnun fyrir klippunum sem keyptar voru notaðar frá Þýskalandi. Efndu þeir meðal annars til fjáröflunar með því að gefa út almanak, en það prýðir myndir af slökkviliðsmönnum sjálfum fáklæddum. Almanakið hefur rokselst og salan nú skilað um 200 þúsund krónum. Þá brugðust hjálparfélög í Grundarfirði mjög vel við söfnuninni, eins og Lionsklúbbur Grundarfjarðar, Kvenfélagið Gleym mér ei og Rauðakrossdeild Grundarfjarðar.
Að sögn Valgeirs slökkviliðsstjóra eru liðsmenn í Slökkviliði Grundarfjarðar um 20 talsins og þar af um fjórtán mjög vel virkir. Hluti þeirra er þegar búinn að sækja námskeið í meðferð björgunarklippanna og annar hópur fer á námskeið á næstunni.