- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Síðasti fundur í bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar fyrir sumarleyfi var haldinn 14. júní sl. Bæjarstjórnin kemur næst saman til reglulegs fundar í september. Bæjarráðið heldur fundi eins og þörf verður fyrir á meðan og hefur umboð til endanlegrar afgreiðslu mála á tímabilinu. Næsti fundur í bæjarráðinu verður á morgun miðvikudaginn 4. júlí kl. 17.00 á bæjarskrifstofunni. Dagskrá fundarins er birt á heimasíðunni og er hlekkur á hana neðarlega í hægra dálki síðunnar.