- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Grundarfjarðarbær auglýsir eftir baðverði í karlaklefa Íþróttahúss Grundarfjarðar til að sinna baðvörslu og þrifum. Vinnutími er frá kl 15:50 mánudaga til fimmtudaga.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Aðalsteinn Jósepsson, forstöðumaður íþróttamannvirkja, í síma 430 8564 og 860 2576 eða á netfanginu steini@gfb.is.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsness (SDS).
Umsóknarfrestur er til 1. september 2017.