- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Klaudia Wojciechowska, nýstúdent úr Fjölbrautaskóla Snæfellinga, er fjallkona Grundfirðinga á þjóðhátíðardeginum 17. júní 2020.
Smellið hér til að horfa á ávarp fjallkonunnar.
Klaudia les ljóð eftir Tómas Guðmundsson, sem fyrst var flutt sem Ávarp fjallkonunnar í Reykjavík árið 1948.
Fjallkonan er tákngervingur íslenskrar þjóðar og lands. Fyrsta þekkta notkun þessa orðs er í kvæði Bjarna Thorarensen, Íslands minni, sem var prentað árið 1819, en kvæðið hefst þannig:
Eldgamla Ísafold,
ástkæra fósturmold,
fjallkonan fríð!