Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar

 

Kjör forseta Íslands fer fram laugardaginn 1.  júní  2024. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst í dag, mánudaginn 13. maí, hér í Grundarfirði og stendur til kjördags. Kosið er utankjörfundar á opnunartíma bæjarskrifstofu í Ráðhúsi Grundarfjarðar, Borgarbraut 16 efri hæð. Opið er virka daga frá 10:00-14:00.

Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.

 

Í umdæmi Sýslumannsins á Vesturlandi fer hún fram á eftirtöldum stöðum:

Akranesi - skrifstofu sýslumanns, Kirkjubraut 28, 2. hæð

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00:00 til 15:00 og kl. 09:00 til 14:00 á föstudögum.

Borgarnesi - skrifstofu sýslumanns, Bjarnarbraut 2

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00:00 til 15:00 og kl. 09:00 til 14:00 á föstudögum.

Búðardal – bæjarskrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11

Alla virka daga kl. 11:00 til 13:00.

Stykkishólmi - skrifstofu sýslumanns, Borgarbraut 2 

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00 til 15:00 og kl. 09:00 til 14:00 á föstudögum.

Snæfellsbæ - skrifstofu Snæfellsbæjar, Klettsbúð 4

Mánudaga til fimmtudaga kl. 09:00 til 12:00 og 13:00 til 15:30 og föstudaga kl. 9:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00.

 

 

Hægt er að kjósa á öðrum tíma samkvæmt nánara samkomulagi við viðkomandi kjörstjóra.
Kjörstjóri utankjörfundar í Grundarfirði er Helga Sjöfn Ólafsdóttir.