Grundarfjarðarbær hefur fengið fjöllistamanninn ÖRN INGA frá Akureyri til liðs við bæjarbúa og býður upp á ævintýranámskeið fyrir alla aldurshópa í vikunni fyrir Grundarfjarðarhátíð; leiklist, myndlist, hreyfilist, götuleikhús o.m.fl. Með í för eru þær Gerður og Alma Rún, sem munu halda dans- og fimleikanámskeið fyrir börn og unglinga, en afraksturinn verður að dagskráratriðum á hátíðinni.
Námskeiðin byrja mánudaginn 18. júlí. Þátttökugjald er 1.000 kr. á barn/ungling, en hver einstaklingur má taka þátt í eins mörgum námskeiðum og hann vill, en um er að ræða: