Núna á laugardaginn 12. okt. er matarmarkaður í Gestastofu Snæfellsnes að Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshrepp.
Opið frá kl. 13:00 -17:00. Það verður allskonar góðmeti í boði - nautakjöt, geitarostar, geitapylsur og aðrar geitaafurðir, ís, ostar, mysudrykkur, ekta skyr, sultur, rjómi, fiskur, nýuppteknar kartöflur og rófur, túlipanar og fleira.
Þá verður bollasúpa í boði - öll velkomin