- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Innan skamms fer aðventan í hönd og þetta skrýtna ár breytir engu um það. Aðventa er tími undirbúnings, huggulegheita og samveru. Styttum okkur stundir heima á Snæfellsnesi, gefum Snæfellsnes í jólagjöf og styðjum við fólkið á bak við fyrirtækin og þjónustuaðilana á Snæfellsnesi og finnum gjafir hér heima í ár. Fjölmargt verður um að vera á aðventunni og tækifæri til notalegra stunda víða að finna.
Svæðisgarðurinn Snæfellsnes leggur sitt af mörkum á aðventunni í ár með því að gefa út Aðventuhandbók sem dreift verður inn á öll heimili á Snæfellsnesi. Samhliða verður efni handbókarinnar aðgengilegt rafrænt á www.adventa.snaefellsnes.is
Allir þjónustu- og verslunaraðilar á Snæfellsnesi eru birtir í handbókinni þeim að kostnaðarlausu auk þess sem allir viðburðir á Snæfellsnesi eru birtir í aðventudagatali í bókinni. Hugmyndir að skemmtilegri afþreyingu má finna og ábendingar um áhugavert efni sem finna má á netinu eða í nánasta umhverfi.
Umsjón með þessu verkefni hafa auk Svæðisgarðsins; Anok margmiðlun ehf. og markaðs- og upplýsingafulltrúar Snæfellsbæjar, Grundarfjarðarbæjar og Stykkishólmsbæjar.
LOKAFRESTUR: Mánudaginn 23. nóvember 2020 kl. 15:00
Aðventuvefur Svæðisgarðsins: http://adventa.snaefellsnes.is
Netfang: adventa20@gmail.com