- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Laus er staða aðstoðarskólastjóra við Grunnskóla Grundarfjarðar frá og með 1. ágúst 2014.
Í Grunnskóla Grundarfjarðar eru nú tæplega 100 nemendur og 22 starfsmenn. Nánari upplýsingar um skólastarfið má finna á heimasíðu skólans, www.grundo.is.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Grunnskólakennararéttindi og reynsla af kennslu í grunnskóla
· Reynsla af stjórnun og stjórnunarstörfum í grunnskóla æskileg
· Lipurð í mannlegum samskiptum
· Metnaður í starfi og áhugi á skólaþróun
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
· Staðgengill skólastjóra
· Umsjón og skipulagning á innra starfi skólans í samráði við skólastjóra
· Umsjón með starfsmannamálum í samráði við skólastjóra
· Samskipti við nemendur og foreldra
Laun eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknir berist til Önnu Bergsdóttur, skólastjóra, í netfangið anna@gfb.is. Anna veitir allar nánari upplýsingar um starfið, í símum 4308555 og 8631670 eða í ofangreindu netfangi.
Umsóknarfrestur er til 23. júní 2014.