Grundarfjarðarbær óskar eftir að ráða aðstoðarmatráð í hlutastarf skólaárið 2024-2025. Um tímabundið starf er að ræða til loka vorannar 2025, með möguleika á framlengingu. Starfsstöð verður í Fjölbrautaskóla Snæfellinga.

Starf aðstoðarmatráðs felst í aðstoð við matreiðslumann við matreiðslu hádegisverðar, skömmtun matar o.fl. Vinnutími er kl. 10:00-14:00 fjóra daga vikunnar, mánudag-fimmtudags.

Menntunar- og hæfniskröfur aðstoðarmatráðs:

  • Þekking og reynsla af eldhússtörfum er æskileg
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og áhugasemi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Gerð er krafa um hreint sakarvottorð.

Ráðið er í starfið frá 26. ágúst 2024.

Umsóknarfrestur er til 18. ágúst 2024.

Nánari upplýsingar um starfið eru veittar á bæjarskrifstofu, í síma 430 8500 eða gegnum netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is

Sótt er um hér!