- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Boðað er til aðalfundar Sjálfseignarstofnunar um Eyrbyggju – Sögumiðstöð
mánudagskvöldið 14. maí 2007 kl. 20.00 í Sögumiðstöðinni. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, m.a. skýrsla stjórnar, ársreikningur, frágangur stofnsamþykkta og kjör nýrrar stjórnar sjálfseignarstofnunarinnar. Umræða um framtíðarhlutverk og tækifæri fólgin í menningar- og þjónustuhlutverki Sögumiðstöðvar.
Mætum öll og tökum þátt í að móta mikilvæga starfsemi í heimabyggð.
Stjórnin