259. fundur 20. júní 2024 kl. 16:30 - 18:50 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS) formaður
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Davíð Magnússon (DM)
  • Heiðrún Hallgrímsdóttir (HH)
  • Lísa Ásgeirsdóttir (LÁ)
Starfsmenn
  • Sigurður Valur Ásbjarnarson (SVÁ) skipulagsfulltrúi
  • Guðmundur Rúnar Svansson (GRS) starfsmaður umhverfis- og skipulagssviðs
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Sigurður Valur Ásbjarnarson skipulagsfulltrúi
Dagskrá
Formaður sett fund og gengið var til dagskrár.

1.Tillaga um breytingu á deiliskipulagi Ölkeldudals

Málsnúmer 2312014Vakta málsnúmer

Lögð er fram til kynningar tillaga á vinnslustigi um breytingu á Aðalskipulagi Grundarfjarðar.



Halldóra Hreggviðsdóttir skipulagsráðgjafi hjá Alta er gestur fundarins á fjarfundi undir þessum lið.



Aðalskipulagsbreytingin er hluti af yfirstandandi vinnu við gerð nýs deiliskipulags Ölkeldudals.

Farið yfir framlagða tillögu og hún rædd.

Framlögð vinnslutillaga um breytingu Aðalskipulags Grundarfjarðar 2019-2039 samþykkt samhljóða.

Ábending úr umræðum; að við gerð lokatillögu verði skoðuð betur útfærsla á mörkum reita ÍB-5 og AF-2, syðst.

2.Deiliskipulag Framness

Málsnúmer 2301002Vakta málsnúmer

Rætt var um vinnu við tengingu miðbæjar, Framness og hafnarsvæðis og um skoðun á lóðarmálum á svæðinu.



Bæjarstjóri og skipulagsfulltrúi sögðu frá vinnu við skoðun á lóðarmálum og samtölum við hagsmunaaðila á svæðinu.

Bæjarstjóra og skipulagsfulltrúa falið að ræða við lögmann bæjarins um lóðamál og áætlun, og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.

3.Hafnarsvæði suður - skipulagsforsendur og breytingar

Málsnúmer 2406008Vakta málsnúmer

Tekin var til kynningar og umræðu deiliskipulagsforsögn fyrir suðursvæði hafnarinnar, þar sem fram kemur tillaga um nánari útfærslu á stefnumörkun gildandi aðalskipulags um nýja landfyllingu og vegtengingu milli hafnarsvæðis norður og suður. Því fylgir efnistaka úr sjó og er nú unnið að undirbúningi umsóknar um leyfi til slíkrar efnistöku, í tengslum við áform um landfyllingu.



Ennfremur lagt fram minnisblað (vinnuskjal) um verkþætti og tímarás fyrir verkefnið.



Tillagan er unnin af hafnarstjórn og hefur verið samþykkt af bæjarstjórn.



Skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir tillögu hafnarstjórnar um þróun og uppbyggingu á suðursvæði hafnarinnar og lýsir yfir ánægju með hana.

4.Fellabrekka 7-13 - óveruleg aðalskipulagsbreyting

Málsnúmer 2403025Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar niðurstaða Skipulagsstofnunar sem hefur fallist á og staðfest óverulega breytingu á aðalskipulagi vegna fjögurra lóða í Fellabrekku, sbr. framlagt bréf stofnunarinnar dags. 23. maí sl.





Þegar teikningar berast frá lóðarhafa verða þær teknar til afgreiðslu í nefndinni, með grenndarkynningu í huga.

5.Fagurhólstún 2 - Fyrirspurn um að breyta bílskúr í íbúð

Málsnúmer 2406020Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúa barst formleg fyrirspurn um það hvort samþykkt yrði að breyta bílskúr að Fagurhólstúni 2 í íbúð. Fram kom í fyrirspurninni að íbúðin yrði ekki sérstök eign heldur hluti af fasteign á umræddri lóð.



Þar sem ekki er til deiliskipulag fyrir svæðið var fyrirspurninni vísað til skipulags- og umhverfisnefndar.



Davíð Magnússon vék af fundinum undir þessum lið.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti breytt not og að skráning bílskúrs breytist í íbúð og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi/heimild að öllum skilyrðum byggingarreglugerðar uppfylltum.

6.Grundargata 57b lóðarblað

Málsnúmer 2406024Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar og umræðu lóðarblað fyrir Grundargötu 57B. Bæjarstjórn samþykkti breytt lóðarmörk á fundi sínum þann 13. júní sl.

Lóðinni að Grundargötu 57 er skipt í þrjá hluta (57, sem er leigð RARIK undir spennistöð, 57B og 57C) auk þess sem hluti lóðarinnar verður almenningsrými.
Lóðin 57B verður 153,7 m2 að stærð.

7.Grundargata 57C - lóðarblað

Málsnúmer 2406025Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um nýtt lóðarblað fyrir Grundargötu 57C.

Lóðinni að Grundargötu 57 er skipt í þrjá hluta (57, sem er leigð RARIK undir spennistöð, 57B og 57C) auk þess sem hluti lóðarinnar verður almenningsrými.

Lóðin 57C verður 389,3 m² að stærð.

Samþykkt samhljóða að mæla með því að bæjarráð samþykki breytt lóðarmörk.

8.Grundargata 59 lóðarblað

Málsnúmer 2406021Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar og umræðu lóðarblað með breyttum lóðarmörkum á Grundargötu 59. Bæjarstjórn samþykkti breytinguna á fundi sínum þann 13. júní sl.

Í breytingunni felst stækkun lóðarinnar úr 1027 m² skv. fasteignaskrá HMS í 1586,3 m² eða um 559,3 m².

9.Grundargata 82 lóðarblað

Málsnúmer 2406022Vakta málsnúmer

Lagt fram lóðarblað fyrir Grundargötu 82 sem felur í sér lagfæringu og óverulega breytingu á núverandi lóðarmörkum. Í breytingunni felst að lóðin minnkar úr 1168,0 m² skv. fasteignaskrá HMS í 1128,2 m² eða um 39,8 m².

Samþykkt samhljóða að mæla með því að bæjarráð samþykki breytt lóðarmörk.

10.Grundargata 90 lóðarblað

Málsnúmer 2406023Vakta málsnúmer

Lagt fram lóðarblað fyrir Grundargötu 90 sem felur í sér lagfæringu og óverulega breytingu á núverandi lóðarmörkum. Í breytingunni felst að lóðin stækkar úr 1168,0 m² skv. fasteignaskrá HMS í 1193,2 m² eða um 25,2 m².



Samþykkt samhljóða að mæla með því að bæjarráð samþykki breytt lóðarmörk.

11.Framkvæmdir 2024

Málsnúmer 2401018Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar hönnunarteikningar vegna gangstétta og tilheyrandi blágrænna svæða við Hrannarstíg neðan Grundargötu og inní götuna Sólvelli, sem og vegna gangstéttar við Nesveg og neðsta hluta Borgarbrautar. Auk þess gögn um frágang ofarlega á Hrannarstíg, þar sem lögð verður hellulögð rönd meðfram malbikaðri gangstétt.



Einnig rætt um framkvæmdir Mílu, en verktaki á vegum fyrirtækisins hefur hafið framkvæmdir við þriðja og síðasta áfanga við lagningu ljósleiðara í þéttbýli Grundarfjarðar.

Farið yfir framlögð gögn og rætt um framkvæmdir, sem eru að hluta til hafnar.

12.Umhverfisrölt

Málsnúmer 2205033Vakta málsnúmer

Vegna veðurfars o.fl. var umhverfisrölti frestað fyrr í mánuðinum.

Samþykkt að bjóða uppá árlegt umhverfisrölt dagana 1. og 2. júlí næstkomandi, en þó með nýju sniði.

Samþykkt að fyrra kvöldið, mánudaginn 1. júlí, kl. 19:30, verði boðið í "umhverfisspjall", þ.e. opið hús og kynningu í Sögumiðstöðinni. Þar gefist íbúum kostur á að ræða um umhverfismál og framkvæmdir, og að leggja fram óskir um svæði sem tekin verði til skoðunar kvöldið eftir.

Þriðjudagskvöldið 2. júlí kl. 19:30 verði íbúum boðið í umhverfisrölt um bæinn, m.a. með hliðsjón af spjalli kvöldinu áður.

13.Önnur mál umhverfis- og skipulagssviðs

Málsnúmer 2201020Vakta málsnúmer

Rætt um gáma á lóðum og að gert verði átak í stöðuleyfum, einkum vegna illa útlítandi gáma sem ekki eru til prýði í umhverfinu. Til nánari umræðu síðar.
Lokið var við fundargerð eftir fund og rafræns samþykkis aflað frá fundarmönnum.

Fundi slitið - kl. 18:50.