Málsnúmer 2406022

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 259. fundur - 20.06.2024

Lagt fram lóðarblað fyrir Grundargötu 82 sem felur í sér lagfæringu og óverulega breytingu á núverandi lóðarmörkum. Í breytingunni felst að lóðin minnkar úr 1168,0 m² skv. fasteignaskrá HMS í 1128,2 m² eða um 39,8 m².

Samþykkt samhljóða að mæla með því að bæjarráð samþykki breytt lóðarmörk.