Málsnúmer 2406025

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 259. fundur - 20.06.2024

Lögð fram tillaga um nýtt lóðarblað fyrir Grundargötu 57C.

Lóðinni að Grundargötu 57 er skipt í þrjá hluta (57, sem er leigð RARIK undir spennistöð, 57B og 57C) auk þess sem hluti lóðarinnar verður almenningsrými.

Lóðin 57C verður 389,3 m² að stærð.

Samþykkt samhljóða að mæla með því að bæjarráð samþykki breytt lóðarmörk.