625. fundur 04. október 2024 kl. 08:30 - 11:52 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE) formaður
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða 2024

Málsnúmer 2401026Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Greitt útsvar 2024

Málsnúmer 2402013Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-ágúst 2024 og janúar-september 2024.

Skv. fyrra yfirlitinu, janúar-ágúst, hefur greitt útsvar hækkað um 3,1% miðað við sama tímabil í fyrra og skv. hinu síðara, janúar-september, er hækkunin 3,9%.

3.Launaáætlun 2024

Málsnúmer 2406017Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir raunlaun og áætlun fyrir tímabilið janúar-ágúst 2024.

Útgreidd laun í janúar til ágúst eru undir launaáætlun tímabilsins, en hafa verður fyrirvara á því að enn er ósamið við mörg stéttarfélög.

4.Rekstraryfirlit 2024

Málsnúmer 2405025Vakta málsnúmer

Lagt fram sex mánaða rekstraryfirlit fyrir janúar-júní 2024.

Rekstur er í samræmi við áætlun fyrstu sex mánuði ársins.

5.Álagning útsvars 2025

Málsnúmer 2409012Vakta málsnúmer

Ákvörðun um álagningarprósentu útsvars 2025.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að álagningarprósenta verði óbreytt frá fyrra ári eða 14,97%.

Samþykkt samhljóða.

6.Fasteignagjöld 2025

Málsnúmer 2409013Vakta málsnúmer

Lögð fram bráðabirgðaálagning fasteignagjalda fyrir árið 2025, sundurliðuð niður á álagningarflokka.

Bráðabirgðaálagning fasteignagjalda fyrir árið 2025 kynnt. Farið yfir forsendur og breytingu milli ára.

Vísað til næsta fundar bæjarráðs.

7.Gjaldskrár 2025

Málsnúmer 2409014Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir mögulega breytingu á þjónustugjaldskrám ásamt samanburði á gjaldskrám annarra sveitarfélaga 2024.

Farið yfir þjónustugjaldskrár og samanburð.

Rætt um breytingar á þjónustugjaldskrám.

Vísað til næsta fundar bæjarráðs.

8.Styrkumsóknir og afgreiðsla 2025

Málsnúmer 2409023Vakta málsnúmer

Lagðar fram innkomnar styrkumsóknir vegna ársins 2025 ásamt fylgigögnum.

Farið yfir lista yfir framlagðar styrkumsóknir.

Vísað til næsta fundar bæjarráðs.

9.Fjárhagsáætlun 2025

Málsnúmer 2409008Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fundadagskrá bæjarráðs vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2025 ásamt forsenduspá.

Rætt um fjárhagsáætlunarvinnu framundan, minnisblað um forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga og drög að fundadagskrá bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir samhljóða endurskoðaða fundadagskrá vegna fjárhagsáætlunarvinnunnar framundan.

10.Starf leikskólastjóra

Málsnúmer 2407017Vakta málsnúmer

Ráðning leikskólastjóra, sbr. auglýsingu starfsins.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu.

Ein umsókn barst um starf leikskólastjóra, en uppfyllti ekki skilyrði fyrir ráðningu.

Bæjarstjóri leggur til að Heiðdís Lind Kristinsdóttir, sem verið hefur aðstoðarleikskólastjóri, verði ráðin til eins árs.

Samþykkt samhljóða.

11.Málefni leikskólans

Málsnúmer 2207006Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf leikskólastjóra um viðbótarstöðugildi vegna stuðningsþarfa. Fyrir liggur mat skv. reglum Grundarfjarðabæjar um stuðning og sérkennslu.

Bæjarráð samþykkir 80% viðbótarstöðugildi frá október 2024 til vors 2025.

Samþykkt samhljóða.

12.Framkvæmdir 2024

Málsnúmer 2401018Vakta málsnúmer

Farið yfir helstu framkvæmdir.

Sigurður Valur Ásbjarnarson, skipulagsfulltrúi, og Ólafur Ólafsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, sátu fundinn undir þessum lið.

Rætt um framkvæmdir í kjallara íþróttahúss, gatnaframkvæmdir og framkvæmdir í Sögumiðstöðinni. Jafnframt rætt um þörf á hönnun kerfismynda vegna verkefna sem krefjast viðbótarorku, í tengslum við orkuskipti íþrótta- og skólamannvirkja.

ÁE vék af fundi undir umræðu um framkvæmdir í kjallara þróttahúss og tók aftur sæti sitt á fundinum eftir þá umræðu.

Lagt til að unnar verði kerfismyndir fyrir orkufrek framtíðarverkefni, s.s. sundlaugarrennibraut, tengingu rafmagns fyrir tjaldsvæði og rafmagnshleðslustöðvar við íþróttahús, þannig að útfærslur og kostnaður séu þekkt.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Sigurður Valur Ásbjarnarson, skipulagsfulltrúi - mæting: 10:48
  • Ólafur Ólafsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi - mæting: 10:48

13.Vegagerðin - Tilkynning um niðurfellingu Hamravegar

Málsnúmer 2409024Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar tilkynning Vegagerðarinnar, dags. 25. september sl., um fyrirhugaða niðurfellingu Hamravegar (5751-01) af vegaskrá.

Fram kemur í erindinu að Vegagerðin, sem veghaldari þjóðvega, hyggist fella veginn af vegaskrá, en hann telst héraðsvegur. Þar sem enginn hafi nú lengur lögheimili eða fasta búsetu að Hömrum uppfylli vegurinn ekki lengur skilyrði til að teljast þjóðvegur.

Bæjarráð áréttar þann skilning sinn við Vegagerðina, að verði breytingar á búsetu þá verði þessi ákvörðun endurskoðuð.

14.Snæfellsjökulsþjóðgarður - Áform um gjaldtöku

Málsnúmer 2409022Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Snæfellsjökulsþjóðgarðs, dags. 12. september sl., um áform um gjaldtöku ferðamanna vegna bílastæða við Djúpalónssand.



15.Sorpútboð 2023-2024 - niðurstöður og samningsmál

Málsnúmer 2401028Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur við Íslenska gámafélagið ehf. um sorphirðu. Samningurinn er gerður á grunni útboðs sem fram fór fyrr á árinu.

16.SSV - Haustþing 2024

Málsnúmer 2409017Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), dags. 23. september sl., um haustþing SSV 2024 sem haldið verður 16. október nk. í Klifi í Ólafsvík.



Á fundi bæjarstjórnar í næstu viku verður gengið frá umboðum vegna þátttöku bæjarfulltrúa á þinginu.

17.Jöfnunarsjóður sveitarfélaga - Ársfundur 2024

Málsnúmer 2409018Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 20. september sl., um ársfund Jöfnunarsjóðs sem haldinn verður 9. október nk.

Bæjarstjóri mun sækja fundinn f.h. bæjarins.

18.Skotgrund - Ársreikningur 2023

Málsnúmer 2407008Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Skotgrundar vegna ársins 2023.

19.Fellaskjól - Ársreikningur og endurskoðunarskýrsla 2023

Málsnúmer 2409016Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Dvalarheimilisins Fellaskjóls vegna ársins 2023 ásamt endurskoðunarskýrslu.

20.Ferðamálastofa - Opnað fyrir umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

Málsnúmer 2409021Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Ferðamálastofu, dags. 13. september sl., þar sem tilkynnt er að opnað hafi verið fyrir umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.

Rætt um verkefni sem sækja megi um í sjóðinn.

21.Samband íslenskra sveitarfélaga - Forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga

Málsnúmer 2409019Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 18. september sl., um helstu forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2025 og 2026-2028.

22.Veitur - Fagurhóll viðgerðir á vatnslögn

Málsnúmer 2410001Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Veitum, dags. 30. september sl., varðandi lekavandamál í götulögn vatnsveitu í Fagurhóli, og minnisblað Veitna af fundi með fulltrúum bæjarins fyrr á árinu.

23.Landvernd - Nægjusamur nóvember

Málsnúmer 2409020Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Landverndar, dags. 17. september sl., um verkefnið "Nægjusamur nóvember".

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 11:52.