621. fundur 06. júní 2024 kl. 17:00 - 20:34 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG) formaður
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
    Aðalmaður: Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða 2024

Málsnúmer 2401026Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Greitt útsvar 2024

Málsnúmer 2402013Vakta málsnúmer

Lögð fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-apríl og janúar-maí 2024.

Samkvæmt yfirlitunum hefur greitt útsvar í Grundarfirði hækkað um 2,2% janúar-apríl og 2,5% janúar-maí 2024 miðað við sama tímabil í fyrra.

3.Upplýsingamiðstöð - Útvistun

Málsnúmer 2405021Vakta málsnúmer

Lögð fram tvö erindi sem bárust vegna auglýsingar um útvistun upplýsingarmiðstöðvar í sumar, en auglýst var eftir rekstrar- og þjónustuaðila til að sinna upplýsingagjöf til ferðafólks.

Lára Lind og Björg fóru yfir minnispunkta sína varðandi aðstöðu beggja umsóknaraðila um rekstur upplýsingamiðstöðvar, eftir samtöl við þá. Hafnarstjóri kom inn á fundinn gegnum síma. Umræður um málið.

Bæjarráð þakkar aðilum fyrir sýndan áhuga.

Eftir yfirferð gagna og upplýsinga leggur bæjarráð til að samið verði við fyrirtækið Álfar og tröll ehf. um rekstur upplýsingamiðstöðvar að Sólvöllum 5 sumarið 2024. Bæjarstjóra falið að ganga til samninga við fyrirtækið.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Hafsteinn Garðarsson, hafnarstjóri (gegnum síma) - mæting: 17:25
  • Lára Lind Jakobsdóttir, forstöðumaður bókasafns og menningarmála - mæting: 17:06

4.Framkvæmdir 2024

Málsnúmer 2401018Vakta málsnúmer

Farið yfir helstu framkvæmdir, einkum gangstéttar á Hrannarstíg og framkvæmdir í kjallara íþróttahúss.
Lára Lind sagði frá framkvæmdum sem í undirbúningi eru í húsnæði Sögumiðstöðvar. Brýnasta verkefnið eru viðgerðir vegna rakaskemmda í syðsta hluta hússins. Rýmið hefur verið tekið út og hreinsað. Jafnframt rætt um umgengni í húsinu. Lára Lind vék af fundi og var þakkað fyrir komuna.

Sigurður Valur kom inn á fundinn gegnum fjarfundabúnað. Hann fór yfir stöðu framkvæmda í íþróttahúsi, gluggaskipti í sundlaug og framkvæmdaþörf í Sögumiðstöð. Hann sagði frá áformum um endurbætur í kjallara íþróttahúss og fór yfir teikningar sem fyrir liggja af verkinu. Framkvæmdir fela í sér umbætur sem kominn var tími á, s.s. á brunavörnum, rafmagni, loftræstingu og almennu fyrirkomulagi og viðhaldi í húsinu. Skipulagsfulltrúa var þakkað fyrir komuna á fundinn.

Bæjarráð felur skipulagsfulltrúa að kanna kostnað við klæðningu sundlaugarbyggingar að vestanverðu og tengigangs milli grunnskóla og íþróttahúss. Jafnframt er honum falið að vinna áfram að undirbúningi framkvæmda/viðgerða í Sögumiðstöð í samræmi við umræður fundarins.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Sigurður Valur Ásbjarnarson, skipulagsfulltrúi (gegnum fjarfund) - mæting: 19:01
  • Lára Lind Jakobsdóttir, forstöðumaður bókasafns og menningarmála - mæting: 17:40

5.Gjaldskrár 2024

Málsnúmer 2309033Vakta málsnúmer

Lagður fram samanburður á gjaldskrám leikskóla hjá ýmsum sveitarfélögum. Jafnframt lögð fram samantekt yfir mögulegar gjaldskrárbreytingar og kostnað vegna þeirra.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gjaldskrá vegna leikskóla og heilsdagsskóla lækki í samræmi við vilyrði sem gefið var í tengslum við yfirstandandi kjaraviðræður, að því gefnu að kjarasamningar við opinbera aðila verði á svipuðum nótum og aðrir kjarasamningar sem samþykktir hafa verið á almennum markaði.

Bæjarstjóra og skrifstofustjóra falið að stilla upp tillögu í samræmi við umræður á fundinum fyrir næsta fund bæjarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

6.Sýslumaðurinn á Vesturlandi - Ums.b.rek.G.II-Aurora Guesthouse, Grundargötu 18, 350 Grundarfjörður

Málsnúmer 2405017Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Sýslumannsins á Vesturlandi vegna umsagnar við umsókn Bubulina ehf. um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II að Grundargötu 18.

Bæjarráð getur ekki veitt jákvæða umsögn, þar sem rekstrarleyfi vegna gistingar er nú einungis heimilað í atvinnuhúsnæði sbr. nýsamþykkta breytingu á lögum nr. 85/2007 um veitinga- og gististaði. Þar sem því skilyrði er ekki fullnægt hér, getur bæjarráð ekki veitt jákvæða umsögn.

Samþykkt samhljóða.

7.Sýslumaðurinn á Vesturlandi - Umsb. um breytingu rek.G.IV-Dísarbyggð, Þórdísarstöðum, 350 Grundarfjörður

Málsnúmer 2405012Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Sýslumannsins á Vesturlandi vegna umsagnar við umsókn Dísarbyggðar ehf. um breytingu á gildu rekstrarleyfi til reksturs gististaðar í flokki IV að Þórdísarstöðum. Um er að ræða matshluta 03-02-01 á jörðinni.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi sé veitt, enda liggja fyrir jákvæðar umsagnir annarra umsagnaraðila.

Samþykkt samhljóða.

8.Alþingi - Til umsagnar 1114. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

Málsnúmer 2405007Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar frá nefndasviði alþingis frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldfrjálsar skólamáltíðir), 1114 mál, til umsagnar.

9.Alþingi - Til umsagnar 1036. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

Málsnúmer 2405024Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar frá nefndasviði alþingis tillaga til þingsályktunar um ferðamálastefnu og aðgerðaráætlun til ársins 2030, 1036 mál, til umsagnar.

JÓK yfirgaf fundinn kl. 19:37.

10.Snjómokstur 2024

Málsnúmer 2406002Vakta málsnúmer

Ákvörðun um fyrirkomulag snjómoksturs á komandi vetri/vetrum.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu sinni og verkstjóra áhaldahúss um fyrirkomulag snjómoksturs. Lagt er til að vetrarþjónusta verði boðin út og bænum skipt í tvo verkhluta. Hægt verði að bjóða í annan eða báða verkhlutana. Lagt er upp með að samningur verði gerður til 3ja ára með möguleika á framlengingu.

Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra og verkstjóra og felur þeim nánari útfærslu og undirbúning útboðs. Útboðsgögn verða lögð fyrir bæjarráð og útboð í framhaldinu auglýst.

Samþykkt samhljóða.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 20:34.