286. fundur 28. maí 2024 kl. 16:30 - 17:48 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK) forseti bæjarstjórnar
  • Heiðdís Björk Jónsdóttir (HBJ)
    Aðalmaður: Garðar Svansson (GS)
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
  • Heiðrún Hallgrímsdóttir (HH)
    Aðalmaður: Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Pálmi Jóhannsson (PJ)
    Aðalmaður: Loftur Árni Björgvinsson (LÁB)
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Forseti setti fund.

Hann bauð Heiðdísi Björk Jónsdóttur velkomna á sinn fyrsta bæjarstjórnarfund.

Gengið var til dagskrár.

1.Skipulags- og umhverfisnefnd - 258

Málsnúmer 2404006FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 258. funda skipulags- og umhverfisnefndar.

BÁ yfirgaf fundinn kl. 17:07.
  • Lögð fram gögn, annars vegar greinargerð og uppdráttur vegna tillögu á vinnslustigi fyrir nýtt deiliskipulag iðnaðarsvæðis vestan Kvernár.

    Hinsvegar tillaga að breytingu á aðalskipulagi vegna svæðisins, en áður var búið að afgreiða og auglýsa vinnslutillögu fyrir breytingu á aðalskipulaginu, vegna deiliskipulagsvinnu svæðisins.

    Halldóra Hreggviðsdóttir, skipulagsráðgjafi, Alta var gestur í fjarfundi undir þessum lið.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 258 Ræddar voru tillögur um breytingar á bæði aðalskipulagi og deiliskipulagi. Stýrihópur verkefnisins (Jósef Ó. Kjartansson og Pálmi Jóhannsson) hafði áður fengið tillögurnar til skoðunar og gerði ekki athugasemdir.

    Eftirfarandi var samþykkt og skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram:

    Um aðalskipulagsbreytingu:

    Lögð er fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039, dags. 10. apríl 2024 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Í breytingunni felst að landnotkunarreitur fyrir efnisvinnslu með auðkenni E-3 fellur út og verður hluti af iðnaðarsvæði með auðkenni I-1. Reitur I-1 stækkar einnig til vesturs og suðurs og verður 16,1 ha að stærð. Nánar er vísað til kynningargagna.

    Lýsing var kynnt í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 29.11.2023 - 27.12.2023 og tillaga á vinnslustigi, í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, var kynnt frá 28.2.2024 - 20.3.2024. Umsagnir sem bárust voru hafðar til hliðsjónar við gerð tillögunnar.

    Um deiliskipulag:
    Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi fyrir iðnaðarsvæði vestan Kvernár, dags. 22. maí 2024. Um er að ræða heildarendurskoðun á deiliskipulagi fyrir iðnaðar- og athafnasvæði vestan Kvernár dags. 1. júlí 1999.

    Tillaga að deiliskipulagi er nú kynnt á vinnslustigi í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lýsing var kynnt í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 29.11.2023-27.12.2023. Umsagnir sem bárust voru hafðar til hliðsjónar við gerð tillögunnar.

    Í endurskoðun felst m.a. að deiliskipulagssvæðið stækkar úr 4,1 ha í 11,5 ha, lóðum fjölgar og byggingarreitir stækka. Þá eru skilmálar eldra deiliskipulags felldir úr gildi og nýir skilmálar settir, m.a. til að auka fjölbreytni og sveigjanleika í lóðastærðum til langs tíma og tryggja góða umgengni á svæðinu. Nánar er vísað til kynningargagna.

    Samhliða endurskoðun á deiliskipulagi er gerð tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039, eins og fyrr er getið.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Á fjarfundi undir þessum lið var Halldóra Hreggviðsdóttir hjá Alta sem skipulagsráðgjafi í verkefninu.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 258 Farið yfir stöðu verkefnisins og yfirstandandi vinnu við gerð tillögu um nýtt deiliskipulag Ölkeldudals. Halldóra gerði grein fyrir vinnu Cowi og Alta að því að skoða regnvatn og farvegi þess á svæðinu, en höfð verður hliðsjón af því í stefnu deiliskipulagsins.
    Stefnt er að því að koma tillögu á vinnslustigi í auglýsingu nú í sumar.

  • Árni Geirsson hjá Alta var viðstaddur undir þessum lið.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 258 Rætt var um vinnu við tengingu miðbæjar, Framness og hafnarsvæðis, sem verið hefur í gangi.
    Rætt um framgang verkefnisins, áherslur og sýn.

    Stýrihópi, skipulagsfulltrúa og bæjarstjóra falið umboð til frekari viðræðna um þróun og uppbyggingu á svæðinu, í samræmi við umræður fundarins.

  • Lögð fram fyrirspurn um bílgeymslu, samanber deiliskipulag sem í gildi er fyrir Sólbakka. Ennfremur teikning sem sýnir fyrirhugaða staðsetningu bílgeymslu.

    Einnig lagt fram minnisblað, unnið að beiðni skipulagsfulltrúa, um skipulagsmál Sólbakka m.t.t. erindisins.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 258 Umsækjandi sendi fyrirspurn um byggingu 50 m2 bílgeymslu á jörð sinni á Sólbakka, Lóð A skv. gildandi deiliskipulagi. Fyrir er á jörðinni frístundahús, en fyrirhuguð bílgeymsla er á uppdrætti sýnd vestan við húsið.

    Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er auk frístundahúss gert ráð fyrir hesthúsi og allt að 50 m2 smáhýsi á lóð A. Lóð B gerir ráð fyrir samskonar heimildum. Byggingarreitir eru almennt rúmir innan lóðarinnar, en taka þarf tillit til þess við hönnun húsa að stórbrotin fjallasýn er frá byggingarreitum og því sérstakir skilmálar um útlit húsa og stefnu þakhalla eða mænis og stöllun húsa í landslagshalla.

    Samkvæmt 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 73/1997 getur sveitarstjórn heimilað að vikið sé frá kröfum um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þegar um óveruleg frávik er að ræða og hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

    Skipulags- og umhverfisnefnd telur að bygging bílgeymslu í stað smáhýsis feli í sér óveruleg frávik frá deiliskipulagi og að breytt staðsetning (byggingarreitur) sé einnig óverulegt frávik skv. 3. mgr. 43. gr., ef útlit og frágangur uppfylla skilmála deiliskipulagsins.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti byggingaráform fyrirspyrjanda en felur skipulagsfulltrúa að ræða við fyrirspyrjanda um staðsetningu bílgeymslu, samanber skilmála deiliskipulagsins.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Málinu var bætt við dagskrá fundarins.

    Gerð er grein fyrir athugasemd Skipulagsstofnunar við frágang deiliskipulagstillögu fyrir Hafnarsvæði norður, sem er til meðferðar hjá stofnuninni, eftir að vinnslutíma lauk hjá skipulagsnefnd og bæjarstjórn.

    Lögð fram tillaga Eflu, skipulagsráðgjafa, og viðbótaruppdráttur sem sýnir skörun skipulagssvæða, en nýja deiliskipulaginu er ætlað að ná að hluta til yfir eldra deiliskipulag fyrir miðsvæði hafnarinnar.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 258 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila breytingu á deiliskipulagi Miðsvæðis hafnar (reitur 3) sem snýr að því að takmarka gildi deiliskipulagsins vegna skörunar við nýtt deiliskipulag Hafnarsvæðis norður, samhliða gildistöku þess síðarnefnda.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framkomna tillögu og mælist til þess að breytingin verði afgreidd sem óveruleg skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Ekki er talin þörf á grenndarkynningu þar sem þær breytingar sem um ræðir hafa þegar verið auglýstar með deiliskipulagi Hafnarsvæðis norður.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Lögð fram fyrirspurn um iðnaðarlóð og tölvupóstur/svarbréf um stöðu málsins.

    Fyrirspurnin/lóðaumsóknin hefur verið höfð til hliðsjónar í vinnu við deiliskipulag iðnaðar- og athafnasvæðis vestan Kvernár. Gerð verður breyting á lóðinni við Hjallatún 2 þar sem lóðinni verður skipt upp í minni lóðir, sbr. mál undir dagskrárlið 1.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 258 Elli Bol ehf. sækir um lóð við Hjallatún 2 til að byggja 250 m2 iðnaðarhúsnæði.
    Lóðin er á svæði sem er deiliskipulagt sem iðnaðarsvæði en jafnframt er unnið að breytingu á skipulaginu.
    Samkvæmt nýsamþykktri vinnslutillögu að deiliskipulagi (sjá dagskrárlið 1) er heimilt að skipta lóðinni við Hjallatún 2 upp í smærri hluta.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að úthluta umsækjanda lóðarhluta austast á lóðinni Hjallatúni 2 í samræmi við tillögu.
    Skipulagsfulltrúa er falið að ræða við umsækjanda og falinn frekari frágangur skv. fyrirspurninni.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Lagt er til að lóðirnar við Hjallatún 1 (núverandi geymslusvæði) og Hjallatún 3 (næsta lóð vestan við geymslusvæði) verði auglýstar lausar til úthlutunar, í samræmi við afmörkun lóðanna í fyrirliggjandi vinnslutillögu deiliskipulags (sjá dagskrárlið 1).

    Bæjarstjórn samþykkti á síðasta ári heimild fyrir því að lóð geymslusvæðis verði tekin undir byggingu, með fyrirvara um frekari útfærslu vegna geymslusvæðis.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 258 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að lóðirnar verði auglýstar, í samræmi við samþykkt um úthlutun lóða í Grundarfirði en með fyrirvara um afhendingartíma og endanlegan frágang. Í þessu felst að geymslusvæðið verði fært/lagt af í núverandi mynd og leggur nefndin til að bæjarráð geri tillögu um fyrirkomulag eða aðrar ráðstafanir í staðinn. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar með fyrirvara um endanlegar lóðarstærðir samhliða auglýsingu lokatillögu deiliskipulags, en í gangi er núna vinna við deiliskipulag svæðisins. Einnig samþykkt að bæjarráð útfæri nánar ráðstafanir vegna geymslusvæðis.
  • Lögð er fram til afgreiðslu fyrirspurn lóðarhafa að Fellasneið 14 varðandi breytingar á nýtingu og skráningu bílskúrs sbr. framlagða teikningu, þar sem hluti bílskúrs verður gerður að íbúð. Byggingarfulltrúi vísaði málinu til skipulags- og umhverfisnefndar þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag af svæðinu.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 258 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti breytt not og að skráning bílskúrs breytist að hluta til í íbúð og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi/heimild að öllum skilyrðum byggingarreglugerðar uppfylltum.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Endurnýjað stöðuleyfi hefur verið í gildi á svæðinu vegna aðstöðuhúss Vestur Adventures fyrir kajakleigu.

    Málið var tekið fyrir á síðasta fundi og skipulagsfulltrúa falið að ræða við umsækjanda um áform á svæðinu, áður en lengra væri haldið.
    Í framhaldi af samskiptum skipulagsfulltrúa við umsækjanda liggja nú fyrir viðbótargögn.

    Sótt er um að reisa ca. 15 m2 léttbyggt skýli með þaki við austurhlið núverandi aðstöðuhúss, klætt í sama stíl og núverandi aðstaða. Einnig er óskað eftir langtímalóðarleigusamningi, fyrir allt að 300 m2. Ennfremur er óskað eftir að tekið verði tillit til rekstrarins við gerð deiliskipulags í Torfabót, sem er hluti af deiliskipulagsvinnu á Framnesi sem nú stendur yfir.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 258 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að umsækjandi fái áframhaldandi stöðuleyfi og að umsækjandi fái framkvæmdaleyfi til að stækka aðstöðuna í samræmi við umsókn, enda er ekki um varanlegar framkvæmdir að ræða.
    Ekki er heimild til að afmarka lóðir á svæðinu, en erindi umsækjanda um að tekið verði tillit til starfseminnar í þeirri deiliskipulagsvinnu sem nú er unnið að vegna Framness verður komið til skila inní þá vinnu.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Þann 8. maí sl. fóru fulltrúar úr skipulags- og umhverfisnefnd í vettvangsgöngu með Leifi Harðarsyni út af gerð fjallahjólastígs. Óskað hefur verið eftir leyfi til að lagfæra og marka leið sem liggur upp með/austan við skíðalyftu, upp Nautaskarð - til að byrja með. Þennan hluta leiðarinnar má sjá í gögnum sem fylgja málinu, úr erindi Leifs og úr mynd frá mars 2024. Í framhaldi af vettvangsferðinni barst ábending landeiganda að Gröf Ytri og Gröf 4, þar sem hann telur að leiðin liggi að hluta inná hans land.

    Unnin var yfirlitsmynd sem sýnir útmörk þessa lands, sem liggur inní eignarlandi bæjarins (Grafarlandi). Ennfremur er sýnd lega þessa hluta hjólaleiðarinnar.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 258 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að áhugamönnum um fjallahjólastíga verði veitt framkvæmdaleyfi fyrir gerð stígs fyrir fjallahjól samkvæmt korti, í samræmi við lýsingu í umsókn, staðsett í landi bæjarins. Um er að ræða tilraunaverkefni og verður ástand landsins og framhaldið metið í haust.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Rætt um breyttar dagsetningar umhverfisrölts.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 258 Samþykkt að umhverfisrölt fari fram dagana 5. og 6. júní næstkomandi.

    Umhverfisröltið hefur verið árleg hefð til þess að bjóða bæjarbúum að hitta bæjarstjórn, skipulags- og umhverfisnefnd og starfsmenn bæjarins og skoða nærumhverfi sitt og koma með ábendingar og hugmyndir. Umhverfisröltið er allajafna farið snemma sumars og því hægt að setja ákveðin verkefni til vinnslu fyrir komandi sumar.
  • Undirbúningur fyrir umræðu síðar, um græn svæði innanbæjar.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 258 Einnig greint frá fundum sem bæjarstjóri og þjónustufulltrúi skipulags- og byggingarsviðs hafa átt með fulltrúum Skógræktarfélags Eyrarsveitar og Skógræktarfélagi Íslands. Rætt hefur verið um gerð nokkurra ára samstarfssamnings, m.a. um gróðursetningu trjáa á völdum svæðum innanbæjar og við mörk bæjarins.

  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 258 Greint frá því að Skipulagsstofnun sé nú að ljúka afgreiðslu á samþykktri tillögu um óverulega breytingu aðalskipulags vegna lóðanna við Fellabrekku 7-9.

    Næsta skref er að taka teikningar lóðarhafa að Fellabrekku 7-13 til afgreiðslu og grenndarkynningar, en teikningar eru í vinnslu hjá lóðarhafa.

    Stefnt að næsta fundi fljótlega.

2.Fjárhagsáætlun 2024 - Viðauki 1

Málsnúmer 2309002Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2024. Í tillögunni felst áætlun um útgjöld vegna styrks til Golfklúbbsins Vestarrs að fjárhæð 8 millj. kr. vegna fyrirhugaðra kaupa golfklúbbsins á golfvelli félagsins í Suður-Bár (sjá næsta dagskrárlið). Ekki er gert ráð fyrir þeim útgjöldum í fjárhagsáætlun ársins og ekki er lagt til að hætt verði við eða dregið úr öðrum fjárfestingum samkvæmt áætlun ársins.



Lagt til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi viðauka við fjárhagsáætlun 2024, sem felur í sér 8 millj. kr. kostnaðarauka og leiðir jafnframt til 8 millj kr. lakari rekstrarniðurstöðu.

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi viðauka við fjárhagsáætlun 2024 sem felur í sér heimild til 8 millj. kr. kostnaðarauka sem leiðir til 8 millj. kr. lægri rekstrarniðurstöðu ársins.

Samþykkt samhljóða.

3.Golfklúbburinn Vestarr - Bárarvöllur

Málsnúmer 2402017Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga starfshóps sem fékk það hlutverk að ræða við stjórn Golfklúbbsins Vestarr (GVG), vegna kaupa á golfvelli og fjármögnun.



Í tillögunni er lagt til að Grundarfjarðarbær styrki golfklúbbinn um 8 millj. kr. árið 2024 og síðan um 5 millj. kr. á ári í átta ár, þ.e. árin 2025-2032. Samkomulag verði gert með samstarfssamningi bæjarins og GVG, þar sem einnig komi fram samkomulag um eflingu barna- og ungmennastarfs á vegum GVG. Samkomulagið yrði bundið við vísitölu neysluverðs.



Forsendur fyrir útgreiðslu fjárstyrkja hvers árs er að fjárhagsáætlun félagsins fyrir hvert ár verði samþykkt af Grundarfjarðarbæ til þess að rekstrarhæfi félagsins sé tryggt. Jafnframt leggi golfklúbburinn fram áætlun og staðfestingu á því hvernig kaup golfklúbbsins á golfvellinum að Suður-Bár verði fjármögnuð að öðru leyti.

Bæjarstjórn samþykkir að veita 8 millj. kr. styrk til Golfklúbbsins Vestarr á árinu 2024 og 5 millj. kr. styrk árlega næstu átta ár, með fyrirvara um að ritað verði undir samstarfssamning milli bæjarfélagsins og golfklúbbsins með þeim forsendum sem fram koma í inngangi. Samstarfssamning skal leggja fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

Samþykkt samhljóða.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 17:48.