-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 258
Ræddar voru tillögur um breytingar á bæði aðalskipulagi og deiliskipulagi. Stýrihópur verkefnisins (Jósef Ó. Kjartansson og Pálmi Jóhannsson) hafði áður fengið tillögurnar til skoðunar og gerði ekki athugasemdir.
Eftirfarandi var samþykkt og skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram:
Um aðalskipulagsbreytingu:
Lögð er fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039, dags. 10. apríl 2024 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í breytingunni felst að landnotkunarreitur fyrir efnisvinnslu með auðkenni E-3 fellur út og verður hluti af iðnaðarsvæði með auðkenni I-1. Reitur I-1 stækkar einnig til vesturs og suðurs og verður 16,1 ha að stærð. Nánar er vísað til kynningargagna.
Lýsing var kynnt í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 29.11.2023 - 27.12.2023 og tillaga á vinnslustigi, í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, var kynnt frá 28.2.2024 - 20.3.2024. Umsagnir sem bárust voru hafðar til hliðsjónar við gerð tillögunnar.
Um deiliskipulag:
Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi fyrir iðnaðarsvæði vestan Kvernár, dags. 22. maí 2024. Um er að ræða heildarendurskoðun á deiliskipulagi fyrir iðnaðar- og athafnasvæði vestan Kvernár dags. 1. júlí 1999.
Tillaga að deiliskipulagi er nú kynnt á vinnslustigi í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lýsing var kynnt í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 29.11.2023-27.12.2023. Umsagnir sem bárust voru hafðar til hliðsjónar við gerð tillögunnar.
Í endurskoðun felst m.a. að deiliskipulagssvæðið stækkar úr 4,1 ha í 11,5 ha, lóðum fjölgar og byggingarreitir stækka. Þá eru skilmálar eldra deiliskipulags felldir úr gildi og nýir skilmálar settir, m.a. til að auka fjölbreytni og sveigjanleika í lóðastærðum til langs tíma og tryggja góða umgengni á svæðinu. Nánar er vísað til kynningargagna.
Samhliða endurskoðun á deiliskipulagi er gerð tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039, eins og fyrr er getið.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 258
Farið yfir stöðu verkefnisins og yfirstandandi vinnu við gerð tillögu um nýtt deiliskipulag Ölkeldudals. Halldóra gerði grein fyrir vinnu Cowi og Alta að því að skoða regnvatn og farvegi þess á svæðinu, en höfð verður hliðsjón af því í stefnu deiliskipulagsins.
Stefnt er að því að koma tillögu á vinnslustigi í auglýsingu nú í sumar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 258
Rætt var um vinnu við tengingu miðbæjar, Framness og hafnarsvæðis, sem verið hefur í gangi.
Rætt um framgang verkefnisins, áherslur og sýn.
Stýrihópi, skipulagsfulltrúa og bæjarstjóra falið umboð til frekari viðræðna um þróun og uppbyggingu á svæðinu, í samræmi við umræður fundarins.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 258
Umsækjandi sendi fyrirspurn um byggingu 50 m2 bílgeymslu á jörð sinni á Sólbakka, Lóð A skv. gildandi deiliskipulagi. Fyrir er á jörðinni frístundahús, en fyrirhuguð bílgeymsla er á uppdrætti sýnd vestan við húsið.
Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er auk frístundahúss gert ráð fyrir hesthúsi og allt að 50 m2 smáhýsi á lóð A. Lóð B gerir ráð fyrir samskonar heimildum. Byggingarreitir eru almennt rúmir innan lóðarinnar, en taka þarf tillit til þess við hönnun húsa að stórbrotin fjallasýn er frá byggingarreitum og því sérstakir skilmálar um útlit húsa og stefnu þakhalla eða mænis og stöllun húsa í landslagshalla.
Samkvæmt 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 73/1997 getur sveitarstjórn heimilað að vikið sé frá kröfum um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þegar um óveruleg frávik er að ræða og hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Skipulags- og umhverfisnefnd telur að bygging bílgeymslu í stað smáhýsis feli í sér óveruleg frávik frá deiliskipulagi og að breytt staðsetning (byggingarreitur) sé einnig óverulegt frávik skv. 3. mgr. 43. gr., ef útlit og frágangur uppfylla skilmála deiliskipulagsins.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti byggingaráform fyrirspyrjanda en felur skipulagsfulltrúa að ræða við fyrirspyrjanda um staðsetningu bílgeymslu, samanber skilmála deiliskipulagsins.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 258
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila breytingu á deiliskipulagi Miðsvæðis hafnar (reitur 3) sem snýr að því að takmarka gildi deiliskipulagsins vegna skörunar við nýtt deiliskipulag Hafnarsvæðis norður, samhliða gildistöku þess síðarnefnda.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framkomna tillögu og mælist til þess að breytingin verði afgreidd sem óveruleg skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Ekki er talin þörf á grenndarkynningu þar sem þær breytingar sem um ræðir hafa þegar verið auglýstar með deiliskipulagi Hafnarsvæðis norður.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 258
Elli Bol ehf. sækir um lóð við Hjallatún 2 til að byggja 250 m2 iðnaðarhúsnæði.
Lóðin er á svæði sem er deiliskipulagt sem iðnaðarsvæði en jafnframt er unnið að breytingu á skipulaginu.
Samkvæmt nýsamþykktri vinnslutillögu að deiliskipulagi (sjá dagskrárlið 1) er heimilt að skipta lóðinni við Hjallatún 2 upp í smærri hluta.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að úthluta umsækjanda lóðarhluta austast á lóðinni Hjallatúni 2 í samræmi við tillögu.
Skipulagsfulltrúa er falið að ræða við umsækjanda og falinn frekari frágangur skv. fyrirspurninni.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 258
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að lóðirnar verði auglýstar, í samræmi við samþykkt um úthlutun lóða í Grundarfirði en með fyrirvara um afhendingartíma og endanlegan frágang. Í þessu felst að geymslusvæðið verði fært/lagt af í núverandi mynd og leggur nefndin til að bæjarráð geri tillögu um fyrirkomulag eða aðrar ráðstafanir í staðinn.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar með fyrirvara um endanlegar lóðarstærðir samhliða auglýsingu lokatillögu deiliskipulags, en í gangi er núna vinna við deiliskipulag svæðisins. Einnig samþykkt að bæjarráð útfæri nánar ráðstafanir vegna geymslusvæðis.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 258
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti breytt not og að skráning bílskúrs breytist að hluta til í íbúð og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi/heimild að öllum skilyrðum byggingarreglugerðar uppfylltum.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 258
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að umsækjandi fái áframhaldandi stöðuleyfi og að umsækjandi fái framkvæmdaleyfi til að stækka aðstöðuna í samræmi við umsókn, enda er ekki um varanlegar framkvæmdir að ræða.
Ekki er heimild til að afmarka lóðir á svæðinu, en erindi umsækjanda um að tekið verði tillit til starfseminnar í þeirri deiliskipulagsvinnu sem nú er unnið að vegna Framness verður komið til skila inní þá vinnu.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 258
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að áhugamönnum um fjallahjólastíga verði veitt framkvæmdaleyfi fyrir gerð stígs fyrir fjallahjól samkvæmt korti, í samræmi við lýsingu í umsókn, staðsett í landi bæjarins. Um er að ræða tilraunaverkefni og verður ástand landsins og framhaldið metið í haust.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 258
Samþykkt að umhverfisrölt fari fram dagana 5. og 6. júní næstkomandi.
Umhverfisröltið hefur verið árleg hefð til þess að bjóða bæjarbúum að hitta bæjarstjórn, skipulags- og umhverfisnefnd og starfsmenn bæjarins og skoða nærumhverfi sitt og koma með ábendingar og hugmyndir. Umhverfisröltið er allajafna farið snemma sumars og því hægt að setja ákveðin verkefni til vinnslu fyrir komandi sumar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 258
Einnig greint frá fundum sem bæjarstjóri og þjónustufulltrúi skipulags- og byggingarsviðs hafa átt með fulltrúum Skógræktarfélags Eyrarsveitar og Skógræktarfélagi Íslands. Rætt hefur verið um gerð nokkurra ára samstarfssamnings, m.a. um gróðursetningu trjáa á völdum svæðum innanbæjar og við mörk bæjarins.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 258
Greint frá því að Skipulagsstofnun sé nú að ljúka afgreiðslu á samþykktri tillögu um óverulega breytingu aðalskipulags vegna lóðanna við Fellabrekku 7-9.
Næsta skref er að taka teikningar lóðarhafa að Fellabrekku 7-13 til afgreiðslu og grenndarkynningar, en teikningar eru í vinnslu hjá lóðarhafa.
Stefnt að næsta fundi fljótlega.
BÁ yfirgaf fundinn kl. 17:07.