629. fundur 04. desember 2024 kl. 08:30 - 10:29 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE) formaður
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG)
  • Garðar Svansson (GS)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða 2024

Málsnúmer 2401026Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Greitt útsvar 2024

Málsnúmer 2402013Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-nóvember 2024.

Skv. yfirlitinu hefur greitt útsvar hjá Grundarfjarðarbæ hækkað um 4,6% miðað við sama tímabil í fyrra.

3.Rekstraryfirlit 2024

Málsnúmer 2405025Vakta málsnúmer

Lagt fram níu mánaða rekstraryfirlit janúar-september 2024.

4.Styrkumsóknir og afgreiðsla 2025

Málsnúmer 2409023Vakta málsnúmer

Lögð fram viðbótarumsókn um styrk 2025.

Styrkbeiðni vísað til bæjarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

5.Fjárhagsáætlun 2025

Málsnúmer 2409008Vakta málsnúmer

Lögð fram fjárfestingaáætlun 2025 og tilheyrandi gögn.

Farið yfir fjárfestingar ársins 2025. Lögð fram endurskoðuð tillaga um fjárfestingar 2025 og tillaga um fjárfestingar Grundarfjarðarhafnar 2025, í framhaldi af fundi bæjarstjórnar og hafnarstjórnar 3. desember.

Umræða um drögin og fjárfestingar 2025.

Fjárfestingaáætlun 2025 samþykkt til 2. umræðu í bæjarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

6.Sýslumaðurinn á Vesturlandi - Afskriftarbeiðni

Málsnúmer 2412001Vakta málsnúmer

Kynnt beiðni Sýslumannsins á Vesturlandi um afskrift á álögðum opinberum gjöldum. Afskrifaður höfuðstóll er að fjárhæð 912.318 kr.

Lagt til að bæjarráð samþykki beiðni sýslumanns.

Bæjarráð samþykkir samhljóða afskrift á álögðum opinberum gjöldum að fjárhæð 912.318 kr. auk vaxta.

7.Íbúðir við Hrannarstíg 18 og 28-40

Málsnúmer 2201007Vakta málsnúmer

Íbúð að Hrannarstíg 36 sem bæjarstjórn ákvað að yrði seld er tilbúin til auglýsingar.



Lögð fram drög að auglýsingu um sölu íbúðarinnar og verðmat fasteignasala fyrir íbúðina. Áður hafa verið lögð fram önnur gögn, eins og um kvaðir á íbúðinni og eignaskiptayfirlýsing.



Bæjarstjóra falið umboð til að auglýsa og annast framkvæmd sölu íbúðarinnar, þ.m.t. að sjá um samningsgerð skv. framlögðum skilmálum. Komi upp álitaefni verður þeim vísað til bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

8.FSS - Drög að reglum FSS um stoðþjónustu

Málsnúmer 2410007Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að reglum FSS um stoðþjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Mál í vinnslu og til afgreiðslu síðar.

9.FSS - Drög að reglum að stuðningsþjónustu sveitarfélaga september 2024

Málsnúmer 2410008Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að reglum FSS um stuðningsþjónustu.

Mál í vinnslu og til afgreiðslu síðar.

10.Orkusjóður - Samningur um orkuskipti 2023

12.Míla - Samningur um ljósleiðaraframkvæmdir

Málsnúmer 2411015Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur við Mílu um ljósleiðaraframkvæmdir.



Samningurinn er gerður í tengslum við samning Grundarfjarðarbæjar við Fjarskiptasjóð, sem lagður var fram í bæjarstjórn til kynningar 8. október sl., en hann kveður á um greiðslu styrks til að ljúka ljósleiðaralagningu í nokkur hús sem eftir voru í þéttbýli Grundarfjarðar.



Ljósleiðaralagningu er nú lokið í sveitarfélaginu.



13.Vegagerðin - Þjóðvegahald í þéttbýli 2024

Málsnúmer 2411019Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur Grundarfjarðarbæjar við Vegagerðina um veghald þjóðvegar í þéttbýli fyrir árið 2024.

14.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fjármagnsstofn sveitarfélaga, fjárfestingaráform og tillögur að úrbótum á vinnumarkaði

Málsnúmer 2411018Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Sambandsins um ýmsar lykiltölur sveitarfélaga.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 10:29.