Málsnúmer 2110009Vakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar hugmynd skipulagsfulltrúa um biðsvæðaverkefni á horni Grundargötu og Hrannarstígs.
Á miðbæjarreit er gert ráð fyrir blandaðri starfsemi, atvinnuhúsnæðis og/eða íbúðarhúsnæðis, skv. aðalskipulagi. Gera má ráð fyrir að unnið verði deiliskipulag reitsins áður en til uppbyggingar kemur. Þar til frekari ákvarðanir um fyrirkomulag og byggingar liggur fyrir, er mikilvægt að hlúa að svæðinu, sem er í hjarta bæjarins (núverandi „víkingasvæði“). Skipulagsfulltrúi leggur fram hugmynd að biðstöðuverkefni á þessu mikilvæga svæði í miðbæ Grundarfjarðar sem felst í því að nýta megi það fyrir íbúa og gesti, gera megi það hlýlegt og aðlaðandi, án þess að varanlegar ráðstafanir séu gerðar sem raski tækifærum til byggingar á því. Slíkt tímabundið verkefni gæti t.d. falið í sér að setja upp bekki, borð, gróður og önnur götugögn, og gæti verið unnið í samstarfi við hönnunarbrautir við Listaháskóla Íslands eða Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri.
Kristín Þorleifsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs og skipulagsfulltrúi og Fannar Þór Þorfinnsson byggingarfulltrúi boðin velkomin til starfa.
Formaður fól Kristínu Þorleifsdóttur fundarstjórn og gengið var til dagskrár.