Málsnúmer 2009033Vakta málsnúmer
Rætt um skipulagsmál á hafnarsvæðinu og framhald skipulagsvinnu, tengsl við aðra skipulagsvinnu sem er í gangi, um undirbúningsvinnu vegna umsóknar um leyfi til efnistöku úr sjó og fleira.
Halldóra Hreggviðsdóttir, jarðfræðingur og skipulagsráðgjafi hjá Alta, aðstoðar hafnarstjórn við undirbúning leyfisumsóknar vegna efnistöku úr sjó. Halldóra og Árni Geirsson hjá Alta sátu í fjarfundi undir þessum lið.
Gestir
- Halldóra Hreggviðsdóttir, skipulagsráðgjafi, Alta
- Árni Geirsson, skipulagsráðgjafi, Alta
Gengið var til dagskrár.