476. fundur 22. október 2015 kl. 16:30 - 18:30 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Berghildur Pálmadóttir (BP) formaður
  • Hinrik Konráðsson (HK)
  • Rósa Guðmundsdóttir (RG)
  • Þorsteinn Steinsson (ÞS) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá

1.Aðalskipulag Grundarfjarðar

Málsnúmer 1510014Vakta málsnúmer

Lögð fram kynningar tillaga Alta að vinnu- og verkáætlun fyrir endurskoðun á aðalskipulagi Grundarfjarðar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja um styrk til Skipulagsstofnunar vegna aðalskipulagsvinnunnar.

2.Starfsmannamál

Málsnúmer 1501074Vakta málsnúmer

Farið yfir starfsmannamál.

3.Íbúð eldri borgara að Hrannarstíg 34

Málsnúmer 1507024Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar búseturéttar- og leigusamningur um Hrannarstíg 34.

4.Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið. Umsókn um byggðarkvóta fiskveiðiársins 2015-2016

Málsnúmer 1509007Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti frá 20.10.2015 þar sem tilkynnt er að Grundarfjarðarbæ er úthlutað 282 þoskígildistonnum.

5.Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga, fundargerð stjórnarfundar

Málsnúmer 1507008Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnarfundar Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga frá 14.10.2015.

6.Mennta- og menningarmálaráðuneyti. Eftirfylgni með úttekt á Leikskólanum Sólvellir

Málsnúmer 1401003Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis vegna eftirfylgni með úttekt á Leikskólanum Sólvöllum. Jafnframt lagt fram svarbréf bæjarstjóra og leikskólastjóra frá 14.10.2015.

7.Óbyggðanefnd, bréf

Málsnúmer 1502006Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Óbyggðanefndar, frá 07.10.2015 varðandi málsmeðferð nefndarinnar. Í bréfinu kemur fram að fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins hefur verið veittur frestur til 15. mars 2016 til að lýsa kröfum um þjóðlendur á svæði 9.

8.Fiskistofa. Sérstakt strandveiðigjald til hafna

Málsnúmer 1409014Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Fiskistofu frá 08.10.2015 varðandi sérstakt strandveiðigjald til hafna.

9.Jafnréttisstofa. Jafnréttis- og framkvæmdaáætlun

Málsnúmer 1510008Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Jafnréttisstofu frá 12.10.2015, þar sem óskað er eftir jafnréttisáætlun sveitarfélagsins.

10.Samgöngustofa. Ástand gróðurs og umferðaröryggi

Málsnúmer 1510006Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Samgöngustofu frá 28.09.2015. Í bréfinu er farið yfir ástand gróðurs og trjáa við vegi og gatnamót af öryggisástæðum.

11.EBÍ. Ágóðahlutagreiðsla 2015

Málsnúmer 1510004Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf EBÍ frá 06.10.2015, þar sem tilkynnt er um ágóðahlut Grundarfjarðarbæjar í sjóðnum. Hlutdeild Grundarfjarðarbæjar er 0,838%.

12.Lausafjárstaða

Málsnúmer 1501066Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

13.Ráðningarsamningar

Málsnúmer 1508014Vakta málsnúmer

Lagður fram ráðningarsamningur við Gunnar Sigurgeir Ragnarsson, skipulags- og byggingafulltrúa.

Ráðningarsamningur samþykktur samhljóða.

14.Arnarauga. Gerð heimildarmyndar

Málsnúmer 1510013Vakta málsnúmer

Lagðir fram tölvupóstar frá Erni Inga Gíslasyni hjá Arnarauga vegna skuldar frá árinu 2006 sem ósamkomulag var um.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá málinu í samræmi við umræðu á fundinum.

15.Byggingafulltrúi, sala á bíl

Málsnúmer 1510012Vakta málsnúmer

Lagt fram kauptilboð í bifreið í sameiginlegri eigu Grundarfjarðarbæjar og Stykkishólmsbæjar. Um er að ræða bíl sem notaður var af byggingafulltrúa. Kauptilboðið er 2,3 millj. kr.
Bæjarráð mælir með að kauptilboðið verði samþykkt enda liggi jafnframt fyrir samþykki Stykkishólmsbæjar.

16.Erindi vegna forkaupsréttarákvæða

Málsnúmer 1510011Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf Sigmars Hrafns Eyjólfssonar, ódagsett en móttekið 05.10.2015. Í bréfinu er velt upp hugmyndum um möguleg kaup Grundarfjarðarbæjar á Haukabergi SH-20.
Bæjarráð mælir ekki með þátttöku Grundarfjarðarbæjar í kaupum á umræddu skipi miðað við þær forsendur sem fram eru settar í bréfinu.

17.Vegagerðin - vetrarþjónusta

Málsnúmer 1510010Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur Vegagerðarinnar frá 06.10.2015 til fyrirtækja í flutningaþjónustu þar sem boðuð er skerðing á vetrarþjónustu Vegagerðarinnar. Jafnframt er spurt hvort fyrirtæki í flutningaþjónustu séu tilbúin að greiða hluta kostnaðar við vetrarþjónustu.
Bæjarráð Grundarfjarðar telur brýnt að aukið fjármagn fáist á fjárlögum til vetrarþjónustu svo Vegagerðinni sé mögulegt að sinna nauðsynlegri vetrarþjónustu. Ekki er hægt að ætlast til þess að fyrirtæki í flutningaþjónustu né aðrir vegfarendur greiði fyrir þá sjálfsögðu þjónustu sem hálkueyðing og snjóruðningur er. Jafnframt skiptir þjónusta þessi miklu máli fyrir sjúkraflutninga og annað öryggi vegfarenda.

18.Dvalar-og hjúkrunarheimilið Fellaskjól v/viðbyggingar

Málsnúmer 1501049Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá stjórn Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Fellaskjól þar sem gerð er grein fyrir fyrirhugaðri viðbyggingu við dvalarheimilið. Unnið er að hönnun viðbyggingarinnar. Áætlað er að unnið verði að grunni árið 2016, að húsið verði reist árið 2017 og innréttingar verði gerðar árið 2017-2018. Ráðgert er að ný hjúkrunarrými verði tekin í notkun vorið 2018.
Í bréfinu er óskað eftir niðurfellingu kostnaðar vegna umsagnar byggingarnefndar Grundarfjarðar.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju með fyrirhugaðar framkvæmdir og vísar endanlegri afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar og leggur til að kostnaður vegna umsagnar skipulags- og umhverfisnefndar verði felldur niður.

19.Íbúðalánasjóður. Erindi til bæjarstjórnar

Málsnúmer 1510005Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf Íbúðalánasjóðs frá 08.10.2015 þar sem sjóðurinn bíður sveitarfélögum til viðræðna um kaup á eignum sjóðsins í viðkomandi sveitarfélagi.
Bæjarráð leggur til að bæjarstjóri ásamt forseta bæjarstjórnar ræði nánar við Íbúðalánasjóð um úrlausnir vegna ónýttra íbúða í eigu sjóðsins í sveitarfélaginu.

20.Styrkumsóknir 2016

Málsnúmer 1510015Vakta málsnúmer

Farið yfir styrkumsóknir vegna ársins 2016.
Áframhaldandi vinnu vísað til næsta fundar bæjarráðs.

21.Gjaldskrár 2016

Málsnúmer 1510016Vakta málsnúmer

Lagðar fram tillögur að þjónustugjaldskrám helstu stofnana.
Áframhaldandi vinnu vísað til næsta fundar bæjarráðs.

22.Fjárhagsáætlun 2016

Málsnúmer 1509022Vakta málsnúmer

Lagðar fram tillögur að álagningu útsvars og fasteignagjalda fyrir árið 2016. Jafnframt lögð fram rammaáætlun rekstrar fyrir árið 2016 ásamt sjóðsstreymisyfirliti.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn á álagningarprósenta útsvars verði óbreytt frá fyrra ári, 14,52%, eða hámarksálagning skv. lögum.
Áframhaldandi vinnu vísað til næsta fundar bæjarráðs.

Fundi slitið - kl. 18:30.