Söng og leiklistarnámskeið sem er opið fyrir börn og unglinga á grunnskólaaldri.
Allir fá tækifæri til að syngja, leika og sprella. Kenndur er grunnur í söngtækni og túlkun og farið í leiki sem ýtir undir sköpun og tjáningu. Út frá spuna og leik búum við til leiklistarsenur sem við munum vinna með í gegnum námskeiðið og setjum saman sýningu sem opin verður fyrir aðstandendur.
5 daga námskeið, kennt 3 klukkustundir í senn, verð: 25.000 krónur. Athugið: Ef barn er með lögheimili í Grundarfirði niðurgreiðir sveitarfélagið 15.000 krónur.
Við höldum einnig áfram að bjóða upp á einkatíma í söng.
Kennari er Bára Lind Þórarinsdóttir, stofnandi Leik og Sprell, útskrifuð leikkona frá listaskólanum LIPA.
Bára hefur unnið í mörg ár sem leiklistarkennari og leikstjóri með börnum og unglingum. Hún er einnig með jógakennararéttindi og lauk söngnámi við Complete Vocal Institute.

Skráning: https://docs.google.com/forms/d/1S2sQUKobdYGGjnOnebMx6eNtFuZuEx_5FI2HeGZ10Ns/