Björg kynnti hugmynd sem Sævar Pálsson setti fram í erindi til hennar. Þar kynnti hann fordæmi úr öðru sveitarfélagi um tillöguvettvang sem gerir íbúum kleift að koma með tillögur að tómstundastarfi, útivistarstöðum, útivistarupplifun og menningarupplifun. Hugmyndir rata svo margar hverjar til raunverulegra framkvæmda. Nefndin ræddi erindið og færir Sævari bestu þakkir fyrir. Nefndin mun útfæra þetta í starfi sínu. Til umræðu síðar.
Rætt um Þríhyrninginn. Nefndin vísar í fyrri umræðu og bókanir sínar um Þríhyrninginn. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að á komandi vetri fari fram undirbúningur fyrir uppbyggingu í Þríhyrningi, þannig að framkvæmdir geti hafist vorið 2020 á þeim grunni. Íbúum verði boðið að taka þátt í að móta hugmynd um fyrirkomulag svæðisins. Horft verði til eldri hugmynda um notkun Þríhyrningsins og þær nýttar eftir því sem við á. Nefndin minnir einnig á hugmynd í vinnslutillögu aðalskipulags um útikennslustofu í Þríhyrningi og leggur áherslu á að af þeim áformum verði.
Nefndin fór yfir hugmyndir fyrir dagskrá heilsuviku sem verður í næstu viku. Dagskrá verður einföld og miðar að því að hafa eitthvað fyrir alla: fjölskylduvæna dagskrá.
UMFG og Grundarfjarðarbær standa að vinnudegi á íþróttavelli á Uppstigningardag, 30. maí nk. og verður það hluti af dagskránni.
Gögn lögð fram til kynningar. Vinnuskóli verður í 6 vikur sumarið 2019, vinnutími 6 tímar virka daga, en 5 tímar á föstudögum. Bæjarstjórn samþykkti að heimila 7. bekk að sækja vinnuskólann í 3 vikur sumarið 2019. Helga Sjöfn Ólafsdóttir verður umsjónarmaður vinnuskólans.
Gréta Sigurðardóttir sat fundinn undir þessum lið, en hún mun sjá um sumarnámskeið fyrir börn í júní og ágúst.
Farið var yfir fyrirkomulag sumarnámskeiðs fyrir börn sem fyrirhugað er í júní og ágúst. Gréta sagði frá undirbúningi námskeiðanna. Hún hefur rætt við fulltrúa UMFG um samræmingu íþróttaæfinga við námskeiðin. Rætt um möguleika til samstarfs við félagasamtök í bænum um aðkomu að námskeiðunum.
Bæjarstjóri fór yfir reynsluna af heilsueflingu 60 sem starfað hefur frá því í lok janúar sl. í samstarfi Félags eldri borgara og bæjarins, með stuðningi RKÍ-deildarinnar. Mikil ánægja hefur verið með þetta starf og stefnt er að því að það haldi áfram nk. haust.
Nefndin lýsir ánægju sinni með verkefnið og tekur heilshugar undir að það haldi áfram á komandi vetri.
6.Mennta- og menningarmálaráðun. - Stefnumótun í íþróttamálum
Gréta Sigurðardóttir sat fundinn undir lið nr. 4.