Málsnúmer 2308001FVakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi óskar eftir staðfestingu bæjarstjórnar til útgáfu byggingarheimildar í samræmi við bókun afgreiðslufundar nr. 2.
-
Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 2
Í ljós kom við afgreiðslu máls að matshluti 01 var rangt skráður. Lóðarhafi hefur skilað inn uppfærðum aðaluppdráttum dags. 01.08.2023 ásamt uppfærðum skráningartöflum fyrir matshluta 01, 02 og 03.
Eftir leiðréttingu á skráningu er nýtingarhlutfallið 0,33 en samkvæmt deiliskipulagi er hámarks nýtingarhlutfall 0,32. Byggingarfulltrúi lítur svo á að aukið nýtingarhlutfall sem nemi 0,01 sé óveruleg breyting og hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Með vísan í 2. og 3. mgr. 43. gr skipulagslaga nr. 123/2010 getur sveitarstjórn heimilað að vikið sé frá kröfum 2. mgr. um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þegar um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni skuggavarp eða innsýn.
Þar sem ofangreint frávik á nýtingarhlutfalli er svo óverulegt, óskar byggingarfulltrúi eftir staðfestingu bæjarstjórnar til útgáfu byggingarheimildar í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að uppfylltum skilyrðum 2.3.8 grein í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
Fundurinn er haldinn sem fjarfundur.