512. fundur 25. apríl 2018 kl. 12:00 - 15:40 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Hinrik Konráðsson (HK) formaður
  • Berghildur Pálmadóttir (BP)
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
  • Þorsteinn Steinsson (ÞS) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Skákfélagið Hrókurinn - Tuttugu ára afmæli

Málsnúmer 1804040Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Skákfélaginu Hróknum sem fagnar 20 ára afmæli á árinu.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að gerast bronsbakhjarl í tilefni afmælisins með greiðslu styrks að fjárhæð 25.000 kr.

2.Skipulagsstofnun, kostnaðarframlag

Málsnúmer 1804048Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf bæjarstjóra frá 20. apríl sl. til Skipulagsstofnunar vegna kostnaðarframlags stofnunarinnar vegna endurskoðunar aðalskipulags fyrir Grundarfjarðarbæ.

3.Lánasjóður sveitarfélaga - Arðgreiðsla 2018

Málsnúmer 1804022Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Lánasjóðs sveitarfélaga frá 9. apríl sl. varðandi arðgreiðslu 2018. Hlutur Grundarfjarðarbæjar í arðgreiðslunni er 1.853.088 kr.

4.Hrífandi - félag um náttúrumenningu - Ráðstefna um samspil umhverfisverndar og þróun byggðar

Málsnúmer 1804032Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur um ráðstefnuna "Verndarsvæði og þróun byggðar" sem haldin verður föstudaginn 27. apríl nk.

5.Orkustofnun, umsókn um efnistöku

Málsnúmer 1804036Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar umsókn um efnistöku Grundarfjarðarhafnar hjá Orkustofnun.

6.Aðveitustöð, framkvæmdir

Málsnúmer 1804043Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar áætlun um framvindu framkvæmda Rarik vegna lagningar strengs frá nýrri aðveitustöð um Grundargötu og niður á hafnarsvæði.

Jafnframt greint frá samningaumleitunum um yfirtöku Grundarfjarðarbæjar á húsnæði gömlu aðveitustöðvarinnar.

7.Íbúðalánasjóður - Úthlutun stofnframlaga til uppbyggingar á almennum íbúðum

Málsnúmer 1804037Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fundarboð Íbúðalánasjóðs vegna fundar um úthlutun stofnframlaga.

8.Íbúðalánasjóður - Ölkelduvegur 9

Málsnúmer 1804034Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar húsaleigusamningur við Íbúðalánasjóð vegna íbúðar að Ölkelduvegi 9.

9.Slökkvilið, starfsmannahald

Málsnúmer 1804044Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf slökkviliðsstjóra varðandi starfmannabreytingar stjórnenda hjá slökkviliðinu.

10.Skipulagsstofnun - Efnisnámur á landi og sjó vegna lengingar Norðurgarðs

Málsnúmer 1804033Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Skipulagsstofnunar frá 11. apríl sl. um efnisnámur á landi og sjó vegna lengingar Norðurgarðs.

11.Þjóðleikhúsið - Þjóðleikhúsið og Brúðuheimar í leikferð um landið

Málsnúmer 1804038Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf þjóðleikhússtjóra varðandi leikferð Þjóðleikhússins og Brúðuheima um landið.

Bæjarráð tekur vel í erindið og felur menningar- og markaðsfulltrúa umsjón þess.

Samþykkt samhljóða.

12.Lausafjárstaða

Málsnúmer 1501066Vakta málsnúmer

Lagt fram og yfirfarið yfirlit yfir lausafjárstöðu.

13.Refa- og minkaveiðar

Málsnúmer 1703037Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu refa- og minkaveiða.

Bæjarstjóra falið að gera samninga á sambærilegum nótum og á síðasta ári.

Samþykkt samhljóða.

14.Míla, samningagerð

Málsnúmer 1804047Vakta málsnúmer

Farið yfir fund sem bæjarstjóri átti með Mílu vegna sölu og reksturs á ljósleiðarakerfi bæjarins í dreifbýli. Jafnframt lögð fram drög að samningi.

Bæjarstjóra falið að vinna að endanlegum frágangi samnings.

Samþykkt samhljóða.

15.Áhaldahús, húsnæði o.fl

Málsnúmer 1804046Vakta málsnúmer

Farið yfir möguleika á leigu eða kaupum á húsnæði fyrir áhaldahús og slökkvilið, en veruleg þörf er á auknu rými fyrir starfsemina.

Bæjarstjóra falið að kanna frekar möguleika á leigu eða kaupum á umræddu húsnæði.

Samþykkt samhljóða.

16.Snæfrost, fundargerð aðalfundar

Málsnúmer 1804045Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð aðalfundar Snæfrosts hf. sem haldinn var 11. apríl sl. Í fundargerðinni kemur fram að fyrirtækið sé í verulegum rekstrarefiðleikum og nauðsynlegt sé að auka rekstrarfé þess. Jafnframt lagður fram ársreikningur Snæfrosts hf. fyrir árið 2017.

Stjórn fyrirtækisins leggur til að fyrirtækið sé auglýst til sölu og á sama tíma sé athugað með niðurfærslu á núverandi hlutafé og leitað til stærstu hluthafa með aukið hlutafé í reksturinn.

Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu stjórnar, en vísar málinu til endanlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar.

17.Meðferð varnarefna, stefna Snæfellsness

Málsnúmer 1804035Vakta málsnúmer

Lögð fram og kynnt stefna Snæfellsness um meðferð varnarefna samþykkt af Byggðasamlagi Snæfellinga.

Bæjarráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti.

18.Skipulags- og byggingafulltrúi, uppsögn

Málsnúmer 1804039Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingafulltrúi hefur sagt upp starfi sínu.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að auglýst verði staða skipulags- og byggingafulltrúa.

19.Framkvæmdir 2018

Málsnúmer 1710023Vakta málsnúmer

Lagt fram framkvæmdayfilit yfir fyrirhugaðar framkvæmdir skv. fjárhagsáætlun ársins 2018. Farið yfir stöðu helstu verkefna og hvernig hugmyndin væri að vinna þau verkefni sem framundan eru. Sérstaklega var rætt um framkvæmdir við leik- og grunnskóla, gangstéttir og gatnagerð, aðalskipulagsvinnu og ýmislegt fleira.

Bæjarráð felur skipulags- og byggingafulltrúa að fá verðtilboð í götumálun og önnur verkefni sem framundan eru til samræmis við umræður á fundinum. Jafnframt vinni hann yfirlit yfir forgangsröðun verkefna og geri tímaáætlun.

Samþykkt samhljóða.

20.Sýslumaðurinn á Vesturlandi - Afskriftabeiðnir

Málsnúmer 1804027Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Sýslumannsins á Vesturlandi um afskriftir útsvarsskulda að fjárhæð 74.591 kr. auk vaxta að fjárhæð 137.239 kr., alls er fjárhæðin því 211.830 kr.

Bæjarráð samþykkir samhljóða beiðni sýslumanns.

21.Greitt útsvar 2018

Málsnúmer 1804051Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar - mars 2018. Skv. yfirlitinu hafa útsvarstekjur hækkað um 11,1% milli ára, miðað við sömu mánuði fyrra árs.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 15:40.