Málsnúmer 2411002

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 262. fundur - 12.11.2024

Lagt fram til kynningar lóðarblað fyrir Fellasneið 12, landnúmer L200352.



Lóðin er skráð 748 m2 í Fasteignaskrá en minnkar um 100,7 m2 í 647,3 skv. mælingu.



Hluti lóðarinnar hefur verið lagður undir stækkun lóðar nr. 14 við Fellasneið, sbr. næsta dagskrárlið á undan.



Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi lóðarblöð.

Lóðin er í eigu og umsjón bæjarins, en á henni er leiksvæði, og því þarf ekki að kynna þessa ráðstöfun sérstaklega fyrir lóðarhafa.