Málsnúmer 2408003

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 260. fundur - 15.08.2024

Fjölbrautaskóli Snæfellinga sækir um byggingarleyfi vegna uppsetningar skiltis, austanvert við hús skólans að Grundargötu 44. Skiltið á að segja sögu skólans og lóðarinnar sem húsið er byggt á.



Skipulagsfulltrúi sagði frá samtölum við umsækjanda og nágranna um málið.



Skipulagsfulltrúa er falið að grenndarkynna framkvæmdina fyrir lóðarhöfum að Sæbóli 13 og Grundargötu 42 þegar öll gögn hafa borist.

Berist ekki athugasemdir í grenndarkynningu er byggingarfulltrúa falið að gefa út byggingarleyfi að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum.