Vélsmiðja Grundarfjarðar ehf., óskar eftir leyfi til þess að byggja við húsið enn frekar. Um er að ræða stækkun til suðurs.Skipulags- og umhverfisnefnd - 225Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við beiðni um stækkun á húsnæði Vélsmiðju Grundarfjarðar, umrædd framkvæmd fellur innan byggingarreits. Bent er á að nýtingarhlutfall lóðar er 0,3 og skal ekki fara fram úr því.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum.
Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
G. Run hf. leggur fram beiðni um breytingu á gildandi deiliskipulagi á hafnarsvæði austan Nesvegar, þ.e. á lóð við Nesveg 4a. Óskað er eftir stækkun á byggingarreit ásamt því að lagðar eru fram teikningar af fyrirhugaðri byggingu. Á lóðinni stóð áður hús sem nú hefur verið rifið.Skipulags- og umhverfisnefnd - 225Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framlagaða tillögu að óverulegri deiliskipulagsbreytingu á Nesvegi 4a og felur byggingarfulltrúa að grenndarkynna hana í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umhverfisnefnd felur byggingarfulltrúa að grenndarkynna óverulega deiliskipulagsbreytingu til eftirfarandi aðila: Nesveg 4, Nesveg 4b, Norðurgarður D og Norðurgarður C.
Einnig er óskað eftir áliti Hafnarstjórnar Grundarfjarðarbæjar þar sem um er að ræða hafnsækna starfsemi.Bókun fundarRG vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
Lögð fram tillaga að (óverulegri) breytingu á deiliskipulagi Ölkeldudals. Breyting nær til lóða nr. 21, 23, 25, 27 og 29-31 við Ölkelduveg. Tillaga að breytingu vegna 29-31 er að beiðni lóðarhafa, en aðrar breytingar að frumkvæði bæjarins er varða færslu á göngustíg og stækkun lóða nr. 21 og 23. Skipulags- og umhverfisnefnd - 225Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framlagaða tillögu að óverulegri deiliskipulagsbreytingu í Ölkeldudal og felur byggingarfulltrúa að grenndarkynna hana í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umhverfisnefnd felur byggingarfulltrúa að grenndarkynna óverulega deiliskipulagsbreytingu til eftirfarandi aðila: Lóðarhafar við Ölkelduveg nr. 21, 23, 25, 27 ásamt lóðarhöfum við Hrannarstíg 28 - 40.Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
Á 224. fundi skipulags- og umhverfisnefndar fól hún byggingarfulltrúa að grenndarkynna fyrirhugaða byggingarframkvæmd að Fellabrekku 5 til nærliggjandi lóðarhafa eða þeirra sem gætu átt hagsmuna að gæta, sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða eigendur að Fellabrekku 3 og Hellnafelli 2 og 4. Einnig var fyrirhuguð framkvæmd auglýst á heimasíðu bæjarins.Skipulags- og umhverfisnefnd - 225Í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 var grenndarkynning send út 4. febrúar og frestur til athugasemda til 5. mars 2021. Þeir aðilar sem grenndarkynninguna fengu hafa nú allir skilað inn sínu samþykki v/fyrirhugaðra framkvæmda.
Skipulagsnefnd er heimilt að ljúka afgreiðslu málsins þegar þeim sem fengu grenndarkynninguna hafa lýst yfir með undirritun sinni að þeir geri ekki athugasemd við fyrirhuguð áform.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum. Bókun fundarRG vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
Fram hefur farið, fyrir bæjarstjórn, greining Alta á rými í götum (götukassar) í þéttbýli og unnar tillögur um hvernig megi koma fyrir breiðari gangstéttum og stígum fyrir hjólandi umferð, samhliða. Einnig hefur verið unnið að útfærslu á göngustígum við austanverða og vestanverða Grundargötu og að göngustíg frá þéttbýli að Kirkjufellsfossi. Til stendur að hafa sameiginlegan fund nefndarinnar með bæjarfulltrúum, til að kynna þessar tillögur. Skipulags- og umhverfisnefnd - 225Til upplýsinga