Fyrir fundinum lágu myndir af helstu framkvæmdum ársins í viðkomandi stofnunum og tillögur um framkvæmdir og viðhald húsnæðis, tækjakaup o.fl. á komandi fjárhagsári. Bæjarráð - 558Í staðinn fyrir heimsóknir bæjarráðs í stofnanir bæjarins, fékk bæjarráð forstöðumenn í heimsókn inná fjarfund og fór með þeim yfir stöðu verklegra framkvæmda og fjárfestingarverkefna ársins 2020. Sýndar voru myndir af framkvæmdum og endurbótum sem átt hafa sér staða á síðustu mánuðum, í stofnunum, auk þess sem farið var yfir þarfir stofnana fyrir komandi fjárhagsár.
Inná fundinn komu eftirtaldir gestir:
Umsjónarmaður fasteigna, Gunnar Jóhann Elísson. Farið var yfir framkvæmdir sem snúa að íbúðum að Hrannarstíg 18 og Hrannarstíg 28-40, húsnæði að Borgarbraut 16 og Grundargötu 30. Kristín Halla Haraldsdóttir kom einnig inn á fundinn undir yfirferð á málefnum samkomuhúss og tjaldsvæðis.
Valgeir Þór Magnússon, verkstjóri áhaldahúss og slökkviliðsstjóri. Farið var yfir framkvæmdir við innréttingu áhaldahúss, sem flutti alfarið í húsnæði að Nesvegi 19 fyrr á árinu. Farið var yfir nauðsynlega endurnýjun tækja og verkfæra, yfir fráveitumál og þarfir slökkviliðs.
Anna Rafnsdóttir, leikskólastjóri. Farið var yfir framkvæmdir við húsnæði leikskóla og leikskólalóð á þessu ári og yfir nauðsynlegar framkvæmdir og viðhald á komandi fjárhagsári. Einnig rætt við Önnu um starfsemi leikskólans á Covid-tímum, reynslu og lærdóm. Bæjarráð færir Önnu og starfsfólki leikskólans þakkir fyrir starf þeirra á krefjandi tímum.
Unnið verður að því að kostnaðarmeta frekar einstaka liði. Auk þess munu forstöðumenn forgangsraða þar sem þess er þörf.
Gestum fundarins var þakkað fyrir komuna á fundinn og yfirferð undir þessum lið.
Framhald umræðu frá síðasta bæjarráðsfundi. Bæjarráð - 558Anna Rafnsdóttir var gestur undir þessum lið fundarins. Málið er í vinnslu, samhliða skoðun launaáætlunar og frekari vinnu vegna fjárhagsáætlunargerðar 2021.
Bæjarráð - 558Lagt fram tilboð Attentus í vinnu við undirbúning jafnlaunavottunar hjá Grundarfjarðarbæ. Sveitarfélögin á Snæfellsnesi fylgjast að í þessari vinnu.
Bæjarráð - 558Bæjarstjóri hafði lagt inn fyrirspurn hjá Minjastofnun um fyrirkomulag styrkveitinga með hliðsjón af möguleikum á styrk til breytinga á samkomuhúsi Grundarfjarðar, einkum gluggasetningu á norðurhlið.
Lögð fram til kynningar tölvupóstsamskipti þar um. Bæjarráð þakkar fyrir upplýsingarnar, en verkefnið kemur þó ekki til framkvæmda á komandi fjárhagsári.