Hafnarstjórn - 15Lagt fram yfirlit yfir kröfur Grundarfjarðarhafnar á fyrirtækið Dagdísi ehf., samtals að fjárhæð 167.084 kr. Hafnarstjórn samþykkir að kröfurnar verði afskrifaðar.
Hafnarstjórn - 15Tjónvaldur vegna mengunarslysa skal greiða kostnað sem hlýst af slíkri mengun í höfnum og hafnarsvæðum. Nauðsynlegt er að í gjaldskrá hafnarinnar séu ákvæði um innheimtu gjalds vegna slíkra atburða. Lagt er til að ákvæði verði sett inn í gjaldskrá hafnarinnar um það að heimilt sé að rukka fyrir mengunarvarnarbúnað sem þarf að nota við slíkar aðgerðir og að notuð verði gjaldskrá yfir útselda vinnu hafnarinnar hvað varðar vinnu starfsmanna hennar. Gjaldskrár annarra um útselda vinnu gilda fyrir vinnu þeirra. Hér er átt við vinnu slökkviliðs eða annarra björgunaraðila sem að málum koma.
Hafnarstjórn samþykkir samhljóða að fela hafnarstjóra að setja inn ákvæði þessa efnis í gjaldskrá Grundarfjarðarhafnar.
Hafnarstjórn - 15Lögð fram viðbragðsáætlun sem unnin hefur verið fyrir Grundarfjarðarhöfn af hafnarstjóra og dags. 20. febrúar 2018. Hafnarstjóri fór yfir áætlunina og gerði grein fyrir helstu atriðum hennar. Hafnarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi viðbragðsáætlun fyrir Grundarfjarðarhöfn.
Hafnarstjórn - 15Lagt fram bréf Orkustofnunar frá 20. mars. sl., varðandi umsögn stofnunarinnar um tilkynningu Grundarfjarðarhafnar um fyrihugaða efnistöku hafnarinnar á allt að 260.000 rúmetrum efnis á landi og hafsbotni í Grundarfirði. Efnistakan er áætluð vegna fyrirhugaðra hafnarframkvæmda við Norðurgarð. Jafnframt lögð fram drög að svari við umsögn Orkustofnunar, sem hafnaryfirvöld hafa unnið að í samvinnu við Vegagerðina. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra ásamt stjórnarformanni að ljúka við svarið og senda það til Skipulagsstofnunar.
Hafnarstjórn - 15Lagt fram bréf Grundarfjarðarhafnar til samgönguráðherra frá 12. des sl., varðandi fjárveitingar til lengingar Norðurgarðs í Grundarfirði. Í bréfinu er óskað eftir fjárveitingum þ.a. hefja megi framkvæmdir á árinu 2018 eins og ráðgert var í gildandi samgönguáætlun áranna 2015-2018. Hafnarstjóra og stjórnarformanni falið að vinna áfram í málinu og eiga fund með samgönguráðherra.
Hafnarstjórn - 15Lagðar fram upplýsingar um bílakaup fyrir Grundarfjarðarhöfn, en keyptur hefur verið nýr transporter pallbíll, sem leysir eldri bíl af hólmi. Hafnarstjórn samþykkir kaupin.
Hafnarstjórn - 15Í vinnu við endurskoðun aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar er gert ráð fyrir að hafnarsvæðið verði skert, við Nesveg 1, frá því sem er í gildandi skipulagi. Hafnarstjórn telur eðlilegt að hafnarsvæðið verði óbreytt miðað við gildandi aðalskipulag. Jafnframt telur hafnarstjórn mikilvægt að útrásarmál á svæðinu verði tekin til skoðunar.
Hafnarstjórn - 15Lagt fram aðalfundarboð Snæfrosts h/f, vegna ársins 2017, sem haldinn veður í Sögumiðstöðinni Grundarfirði miðvikudaginn 11. apríl nk. kl. 16.30 Fulltrúar hafnarinnar munu mæta fundinn.