Fram voru lagðar þrjár tilnefningar íþróttamanna vegna ársins 2022 frá íþróttafélögum.
Gestir
- Garðar Svansson f.h. Golfklúbbsins Vestarrs - mæting: 16:30
- Guðni Leifur Friðriksson f.h. Hesteigendafélags Grundarfjarðar - mæting: 16:30
- Sigríður G. Arnardóttir f.h. UMFG
- Jón Pétur Pétursson f.h. Skotgrundar, Skotfélags Snæfellsness - mæting: 16:30
Gengið var til kjörs á íþróttamanni ársins í samræmi við reglurnar. Niðurstöðu verður haldið leyndri þar til íþróttafólk ársins verður heiðrað, sem verður á gamlársdag.
Íþrótta- og tómstundafulltrúi mun sjá til þess að farandbikar verði áritaður og að verðlaunaskjöldur verði útbúinn fyrir íþróttamann ársins. Aðrir íþróttamenn fái blómvönd. Öll fái þau áritað skjal.
Fulltrúum íþróttafélaganna var þökkuð koman og viku þau af fundi.