Nesbyggð ehf. leggur fram umsókn um byggingarleyfi fyrir 5 íbúða raðhúsi við Ölkelduveg 29-37 ásamt teikningum. Byggingarfulltrúi hafði gefið lóðarhafa graftrarleyfi þann 15. september sl. til þess að kanna jarðveg og setja út lóð.
Framlögð gögn eru í samræmi við gildandi deiliskipulag lóðanna. Skipulags- og umhverfisnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi að öllum skilyrðum uppfylltum, sbr. 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012, með síðari breytingum.
Skipulags- og umhverfisnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi að öllum skilyrðum uppfylltum, sbr. 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012, með síðari breytingum.