Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga (FSS), fundargerð 113. fundar sem haldinn var 15. febrúar sl. og fundargerð 114. fundar sem haldinn var 26. febrúar sl., ásamt minnisblaði FSS um skólaþjónustu, tilvísunarblaði leik- og grunnskóla til FSS og ályktun skólastjórnenda á Snæfellsnesi um eflingu þjónustu FSS.
Bæjarráð leggur til að gögnin verði send skólanefnd til upplýsinga.
Rætt var um bréf skólastjórnenda til Félags- og skólaþjónustunnar (FSS) um þjónustu við skóla. Fyrirhugaður er fundur skólastjórnenda og FSS um samstarf og þjónustu.
Bæjarráð leggur til að gögnin verði send skólanefnd til upplýsinga.