.11912018Útboð og samningur um tryggingar bæjarins
Bæjarráð - 541Lagt fram minnisblað ráðgjafarfyrirtækisins Concello vegna útboðs sem fram fór á tryggingum Grundarfjarðarbæjar. Þrjú tryggingafélög skiluðu inn tilboðum, VÍS, Sjóvá og TM. Jafnframt voru lögð fram drög að viðauka um forvarnarsamstarf, en í útboðsgögnum leitaði bærinn eftir skriflegum hugmyndum tilboðsgjafa um útfærslu vegna forvarna, t.d í formi fræðslu, sem leitt gæti til öruggari starfsemi sveitarfélagsins í framtíðinni.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, sem er VÍS. Tilboðið felur í sér lækkun iðgjalda frá samningi við VÍS sem rennur út um áramótin næstu. Ennfremur samþykkir bæjarráð að staðfestur verði viðauki VÍS um forvarnarsamstarf. Samningur verði gerður til þriggja ára.