Embættinu hefur borist umsókn um byggingarleyfi vegna byggingar á sumarhúsi á spildu úr landi Hamra, Árbrekku 1.Skipulags- og umhverfisnefnd - 209Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með síðari breytingum.
Eftir að byggingarleyfið hefur verið gefið út þarf að tilkynna Vegagerðinni um tengingu heimreiðar við þjóðveg. Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
.21908022Nesvegur 17 - Byggingarleyfi
ÞF smíði sendir inn beiðni vegna ísetningar á glugga á iðnaðarbili sínu við Nesveg 17. Meðfylgjandi er samþykki allra skráðra eigenda við Nesveg 17. Eigandi hefur einnig skilað inn reyndarteikningum.Skipulags- og umhverfisnefnd - 209Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með síðari breytingum. Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
.31911006Berserkseyri - Byggingarleyfi
H.G.G Fasteign sendu inn umsókn v/ byggingarleyfis í nóvember sl. Á 206. fundi skipulags- og umhverfisnefndar frestaði nefndin erindinu og fól byggingarfulltrúa að fara í vettvangsskoðun. Þann 18. desember 2019 fór byggingarfulltrúi ásamt slökkviliðsstjóra í skoðun og reyndust framkvæmdir í samræmi við teikningar. Byggingarfulltrúi hefur yfirfarið og samþykkir framlagðar teikningar.Skipulags- og umhverfisnefnd - 209Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með síðari breytingum.Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
.41912009Nesvegur 4a - Leyfi til niðurrifs
Fyrir hönd G.Run er óskað eftir byggingarleyfi vegna niðurrifs á húsi við Nesveg 4a. Í framhaldi af því verður síðar sótt um leyfi til uppbyggingar á nýju húsnæði fyrir netaverkstæði fyrirtækisins.
Skipulags- og umhverfisnefnd - 209Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi til niðurrifs á húsinu Nesvegur 4a, að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með síðari breytingum.Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
.51912017Grundarfjarðarhöfn - Framkvæmdarleyfi sjóvörn og landfylling
Hafnarstjórn Grundarfjarðar óskar eftir framkvæmdarleyfi og fer þess á leit við bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar/skipulagsnefnd að hún taki ákvörðun um hvort framkvæmdir vegna sjóvarnar og landfyllingar, austan við Nesveg og fram á Framnes, sbr. deiliskipulag svæðisins, séu háðar mati á umhverfisáhrifum. Framkvæmdin er í flokki C. Skipulags- og umhverfisnefnd - 209Í samræmi við 6 gr. laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda hefur skipulags- og umhverfisnefnd farið yfir tilkynningu framkvæmdaraðila.
Niðurstaða nefndarinnar er að sjóvörn og landfylling, austan við Nesveg og fram á Framnes sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 106/2000. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsókn framkvæmdaraðila um framkvæmdarleyfi v. framkvæmdarinnar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdarleyfi.
Hafsteinn Garðarsson, hafnarstjóri kom inn á fundinn og veitti upplýsingar um fyrirhugaðar framkvæmdir, í upphafi þessa dagskrárliðar.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að ákvörðunin verði auglýst í samræmi við 6. gr. laga nr. 106/2000, og kærufrestur ákveðinn, sbr. 14. gr. sömu laga.
Bókun fundarFyrir skipulags- og umhverfisnefnd var lagt fram erindi Grundarfjarðarhafnar þar sem tilkynnt er um áformaðar framkvæmdir við sjóvörn og landfyllingu á Framnesi austan Nesvegar, sbr. framlögð gögn. Auk þess var lögð fram ósk um útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmdarinnar.
Framkvæmdin er C-framkvæmd og fellur undir flokk V, lið 10.23 í viðauka 1 í lögum um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda nr. 106/2000.
Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulag á svæðinu, efnistaka í námu í Lambakróarholti er í samræmi við breytingu sem gerð var 2019 á aðalskipulagi vegna efnistöku þar.
Framkvæmdin er tilkynningarskyld til leyfisveitanda, þ.e. Grundarfjarðarbæjar, sem ákvarðar hvort framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum áður en framkvæmdarleyfi verður veitt.
Í samræmi við 6. gr. laga nr. 106/2000 hefur skipulags- og umhverfisnefnd farið yfir tilkynningu framkvæmdaraðila á fundi sínum fyrr í dag. Niðurstaða nefndarinnar var að framkvæmdin sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 106/2000. Því skuli framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Nefndin fór jafnframt yfir framlögð gögn vegna framkvæmdarinnar, sem er í samræmi við samþykkt aðal- og deiliskipulag, og samþykkti útgáfu framkvæmdarleyfisins.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða niðurstöðu skipulags- og umhverfisnefndar og mun auglýsa hana í samræmi við 14. gr. laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Samþykkt samhljóða.
.61908008Framkvæmdaleyfi til skógræktar á Spjör
Á 206. fundi skipulags- og umhverfisnefndar var afgreiðslu á umsókn um framkvæmdarleyfi frestað og nefndin óskaði eftir við framkvæmdaraðila að gerð yrði grein fyrir umhverfisáhrifum.
Borist hafa svör við þeim atriðum sem skipulags- og umhverfisnefnd sendi á framkvæmdaraðila, ásamt umsögn (Stutt greinargerð um skógræktarsvæði á Spjör í Grundarfjarðarbæ) dags. 29. apríl 2019 frá skógræktarráðgjafa Skógræktarinnar. Skipulags- og byggingarfulltrúi hefur farið yfir umrædd svör og uppfylla þau þær fyrirspurnir sem lagðar voru fyrir.
Skipulags- og umhverfisnefnd - 209Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að yfirfara framlögð gögn og kalla eftir viðbótargögnum sbr. umræður á fundinum og að fengnu áliti skipulagsráðgjafa.
.72001010Hlíðarvegur 1 - Reyndarteikningar
Embættið hefur móttekið reyndarteikningar af Hlíðarvegi 1. Byggingarfulltrúi hefur yfirfarið teikningar og leggur til að nefndin samþykki.Skipulags- og umhverfisnefnd - 209Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið. Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.