Grundarfjarðarhöfn sækir um framkvæmdaleyfi í samræmi við breytingu á aðalskipulagi vegna hafnarframkvæmda, sem staðfest hefur verið og birt í B-deild Stjórnartíðinda í dag 1. nóvember 2019.
Hafnarstjóri Grundarfjarðarhafnar, f.h. hafnarsjóðs Grundarfjarðarhafnar, leggur fram umsókn um framkvæmdaleyfi skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lengingu Norðurgarðs til austurs og gerðar nýs viðlegukants. Sótt er um framkvæmdaleyfi á grunni staðfestrar breytingar á Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2003-2015 vegna lengingar Norðurgarðs og efnistökusvæðis í Lambakróarholti, dags. 1.11.2019.
Skipulags- og umhverfisnefnd hefur kynnt sér fylgigögn sem vísað er til í umsókn um framkvæmdaleyfi. Það er mat skipulags- og umhverfisnefndar að framlögð gögn lýsi framkvæmdinni á fullnægjandi hátt, hönnunargögn séu fullnægjandi og að framkvæmdin sé í samræmi við gildandi aðalskipulag, sbr. 10. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framkvæmdaleyfi vegna lengingar Norðurgarðs með tilvísan í 15. gr. skipulagslaga. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.