Bongó slf. sækir um tímabundið stöðuleyfi v/matarvagns sem staðsettur verður á auðu svæði á Grundargötu 33 líkt og verið hefur síðustu árin. Umrætt tímabil er frá 20. maí til 10. september 2021.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út stöðuleyfi að uppfylltum skilyrðum, í samræmi við gildandi Gjaldskrá og reglur vegna stöðuleyfa í Grundarfjarðarbæ.