Óskað er eftir framkvæmdaleyfi til þess að snyrta og laga skotæfingasvæði félagsins. Steypa stoðveggi, steypa gangstéttir, fylla bílastæðið með fínni grús og þökuleggja önnur svæði umhverfis skothúsið og bílastæðið.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdarleyfi.