Lögð fram eftirfarandi tillaga: Formaður Sigríður G. Arnardóttir Varaformaður Garðar Svansson Ritari er starfsmaður nefndarinnar, sem er bæjarstjóri.
Skólanefnd - 144Tillaga samþykkt samhljóða.
Farið var yfir erindisbréf nefndarinnar og rætt um hlutverk og verkefni á starfssviði hennar. Sirrý sagði frá gögnum sem nefndin hefur haft aðgang að; lögum og reglum, leiðbeiningum á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga o.fl. Jósef hvatti til þess að nefndin sýndi frumkvæði í þeim málum sem undir hana heyra og aðstoði bæjarstjórn við að halda utan um þennan mikilvæga málaflokk. Nefndin mun á næsta fundi sínum fara yfir þau lög og reglur sem gilda um starfsemi sem undir nefndina heyrir.
Samkvæmt erindisbréfi nefndarinnar er gert ráð fyrir að hún fundi að jafnaði einu sinni í mánuði. Skólanefnd - 144Lagt er til að fundir nefndarinnar verði að jafnaði haldnir á mánudögum klukkan 16.30. Næsti fundur verður haldinn mánudaginn 15. október.
Í gildi eru siðareglur fyrir kjörna fulltrúa frá mars 2014. Öllum kjörnum fulltrúum í bæjarstjórn, nefndum og ráðum sem sveitarstjórn skipar ber að haga störfum sínum í samræmi við siðareglurnar. Skólanefnd - 144Farið yfir siðareglur og lagaákvæði um hæfi.
Skólanefnd - 144Á fundinn mættu Sigurður Gísli Guðjónsson, skólastjóri og Anna Kristín Magnúsdóttir, fulltrúi kennara. Formaður bauð þau velkomin. Skólastjóri óskaði nýrri nefnd velfarnaðar í starfi sínu og sagðist hlakka til samstarfsins. Skólastjóri fór yfir skýrslu sína um skólastarf grunnskóla. Í grunnskólanum eru 97 nemendur í upphafi skólaárs. Sigurður Gísli sagði frá nýjum kjarasamningum sem breyttu vinnutímaskilgreiningu kennara, frá breytingum sem gerðar voru innanhúss fyrir unglingastigið þar sem búin var til ein stofa úr tveimur. Hann minntist á ný persónuverndarlög sem taka þarf tillit til í skólastarfinu. Sigurður fór yfir gögn sem fyrir lágu; umbótaáætlun vegna ytra mats, vinnuskipan 2018-2019 og dagskipulag fyrir 2018-2019.
Skólanefnd - 144Leikskólastjóri var boðin velkomin til fundar. Hún gerði grein fyrir starfsemi skólans, sbr. áður senda minnispunkta. Nú í haust eru 45 börn í leikskólanum. Anna minntist á að reglur bæjarins um styrki til starfsmanna í leik- og grunnskóla sem stunda fjarnám við leikskólakennaraskor og kennaraskor KHÍ, séu orðnar úreltar og mætti endurskoða. Hún sagði frá því að hún hefði hug á að vinna með hugmyndafræði "Uppeldi til ábyrgðar". Anna gerði grein fyrir móttökuáætlun nýrra starfsmanna. Umræða var um framlagningu sakavottorða í tengslum við ráðningar. Farið var lauslega yfir stöðu húsnæðismála og framkvæmda sem nú standa yfir í skólanum. Á næsta fundi mun Anna gera grein fyrir námsferð starfsfólks til Finnlands.
Á fundi sínum þann 16. ágúst sl. samþykkti bæjarstjórn að hefja endurskoðun fjölskyldustefnu Grundfirðinga frá 2006. Bæjarráði var falið að móta frekar umfang og aðferðir við endurskoðunina. Óskað var eftir að nefndir bæjarins færu yfir stefnuna og skiluðu bæjarráði ábendingum sínum um efni hennar og óskum um atriði sem taka þyrfti á í nýrri fjölskyldustefnu. Samráð verði ennfremur haft við helstu stofnanir og hagsmunaaðila við endurskoðunina. Skólanefnd - 144Nefndin fagnar því að endurskoða eigi fjölskyldustefnuna og mun taka hana til umræðu á næsta fundi.
Óskað er eftir umfjöllun nefndarinnar um tillögu á vinnslustigi um endurskoðað aðalskipulag, sem samþykkt var af skipulagsnefnd og bæjarstjórn í maí sl.Skólanefnd - 144Farið lauslega yfir viðfangsefni aðalskipulags. Til umræðu á næsta fundi nefndarinnar.
Skólastefna Grundarfjarðarbæjar var samþykkt 2014 í samræmi við grunnskólalög og leikskólalög. Stefnan er lögð fram til kynningar og umræðu.Skólanefnd - 144Nefndin telur að skólastefnuna þurfi að endurskoða og mælist til þess við bæjarstjórn að sú vinna fari fram.
Bókun fundarTil máls tóku JÓK, GS og BÁ.
Bæjarstjórn tekur undir með skólanefnd um þörf þess að endurskoða skólastefnu bæjarins og vísar því til bæjarráðs að ákveða fyrirkomulag þeirrar vinnu. Höfð verði hliðsjón af því að nú þegar er búið að setja af stað vinnu við endurskoðun fjölskyldustefnu bæjarins og fleiri umfangsmikil verkefni eru í farvatninu.
Kynnt bókun frá 176. fundi félagsmálanefndar Snæfellinga þann 4. september sl. þar sem nefndin fagnar því að HVE bjóði nú upp á sálfræðiþjónustu fyrir börn og fullorðna, að fenginni tilvísun heilsugæslulæknis. Fram kemur að nefndin væntir góðs aðgengis íbúa Snæfellsness að þjónustunni.Skólanefnd - 144Lagt fram til kynningar. Nefndin fagnar því að HVE bjóði nú upp á aukna þjónustu og tekur undir með félagsmálanefnd um að hún væntir góðs aðgengis að þjónustunni fyrir Snæfellinga.
Átakið gengur út á að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Átakið hófst 5. september og Göngum í skólann dagurinn er miðvikudaginn 10. október. Skólanefnd - 144Nefndin tekur undir bókun íþrótta- og æskulýðsnefndar á fundi dags. 10. september, þar sem undirstrikað er mikilvægi hvatningar til barna og fullorðinna um að nýta sér virka ferðamáta. Í tengslum við þetta vill skólanefnd minna á mikilvægi þess að umferðarleiðir barna til og frá skóla séu greiðar og öruggar, og að umferðarhraða sé haldið í lágmarki.
Persónuvernd hefur sent frá sér tilmæli til skóla, íþróttafélaga og fleiri um notkun viðkvæmra persónuupplýsinga. Birting mynda af börnum á Facebook-síðum skóla, íþróttafélaga o.fl. getur falið í sér ólöglega birtingu viðkvæmra persónuupplýsinga. Birting tilkynninga um viðburði er hins vegar í lagi.Skólanefnd - 144Lagt fram til kynningar.